demo image
  | Forsíða  | Álit annarra  | Um höfundinn  | Tölvupóstur  | Tenglasafnið | Gestabókin | Spjall |
Barnauppeldi
Vísindi
Dulspeki
Fíkniefnamál
Mannfræði
Nýöld
Viðtöl
Þjóðmál
Aðsent efni
Fordómar
Krítik á Weber
Helförin
Viska indíána
Boðliðarnir
SEKir fjölmiðlar
Aríaspekin
Ketamín
Geirfinnsmálið
Pezkallinn
Brúnu boðliðarnir á leið í búrið?

Framtakssamir sölumenn fyrir rétti í Kaupmannahöfn

Nú standa yfir réttarhöld í Borgardómi Kaupmannahafnar yfir forsprökkum Brúnu boðliðanna svokölluðu (De Brune Bude). Þeim er gefið að sök að hafa rekið heimsendingarþjónustu, byggða á fyrirmynd sendlafyrirtækjanna Bláu boðliðanna og Grænu boðliðanna, sem íklæddir búningum í lit fyrirtækja sinna þeytast á reiðhjólum um götur Kaupmannahafnar með hraðsendingar fyrir fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Nema hvað Brúnu boðliðarnir sendust ekki með pappír og smápakka, heldur hið vinsæla vímuefni hass. Þar af er leiddur liturinn í nafni þeirra.

Áhugasamir viðskiptavinir gátu á afar einfaldan hátt hringt í símamiðstöð boðliðanna og lagt inn pöntun fyrir þeirri tegund og því magni af hassi sem þá vantaði. Að vörmu spori birtist svo sendill á tröppum viðskiptavinarins, afhenti umbeðna vöru, tók við greiðslu og skyldi að lokum eftir nafnspjald með vörumerki fyrirtækisins og nauðsynlegum upplýsingum, meðal annars nafni og símanúmeri, svo auðvelt yrði að halda viðskiptum áfram eða kynna þjónustuna fyrir öðrum. Einnig var hægt að panta gegnum heimasíðu fyrirtækisins, það hafði fastan opnunartíma og sendlarnir unnu á skipulögðum vöktum: Daga, kvöld, nætur og helgar.

Ýmsar gerðir kannabisefna

Fíkniefnasalar Íslands hafa löngum verið taldar óværur og stunga í síðu þjóðarinnar. Fáar stéttir landsins hafa þurft að þola annan eins óhróður og illmælgi og þeir aðilar sem af fórnfýsi sinni og þjónustulund hafa tekið að sér að selja fólki ólögleg fíkniefni. Goðsagan um að þeir standi í ströngu við að selja varning sinn og koma ,,öðrum á bragðið" lifir ennþá góðu lífi á Íslandi. Ekkert er jafn fjarri sanni. Íslenskir fíkniefnasalar fá varla svefnfrið fyir ágengni kaupenda. Til þeirra eru gerðar miklar kröfur og virðingavert hve margir þeirra standa undir þeim án pirrings eða sérvisku. Í stað þess að níða skóinn af þessari stétt væri nær að reisa henni járnstyttu á Klambratúni með áletruninni: ,,Til hamingjusmiðsins! Frá þakklátri þjóð."

Þessi nýjung í fíkniefnaviðskiptum naut þegar frá byrjun mikilla vinsælda meðal höfuðborgarbúa, enda hassneysla nokkuð almenn í Danmörku - mælist á bilinu 40-50% af öllum fullorðnum við neyslukannanir. Símtölum ringdi inn og boðliðarnir höfðu vart undan. En þar með var hin djarfa nýbreytni líka dauðadæmd, það segir sig sjálft að slíkum vinsældum verður ekki haldið leyndum fyrir opinberum aðilum. Lögregluyfirvöld voru alls ekki jafn hrifin af þessari framtakssemi og hassneytendur. Í júní á síðasta ári sló lögreglan til á 14 mismunandi stöðum í Kaupmannahöfn. Forsvarsmenn fyrirtækisins voru handteknir og vörubirgðir gerðar upptækar. Fyrir rétti nú standa 12 einstaklingar sem taldir eru hafa borið ábyrgð á starfseminni.

Ýmislegt getur nú týnst ...

Ákæruvaldið upplýsir að hasssendlarnir hafi náð að afgreiða um það bil 8.000 pantanir áður en lögreglan greip í taumana. Áætlað er að meðalpöntun hafi hljóðað upp á 1,5 gramm þannig að magnið sem þeir brúnu náðu að selja er ekki undir 12 kílógrömmum.

Réttarhöldin verða umfangsmikil, saksóknari mun kalla til um 40 vitni, þar á meðal nokkra viðskiptavini. Í upphafi málsins var ætlunin að þeir sættu ákæru líka, en þar sem þeir höfðu reykt sönnunargögnin áður en lögreglan hafði samband við þá var ekki möguleiki á ákæru. En fleiri og mikilvægari sönnunargögn í málinu hafa horfið: Gögnum sem Símhlerunarmiðstöð Ríkislögreglustjóra (hvenær fáum við Íslendingar slíka stofnun?) hafði aflað um símasamskipti fyrirtækisins var óvart eytt er verið var að gera breytingar í tölvuherbergi miðstöðvarinnar. En saksóknari er þrátt fyrir þessi áföll vongóður um sakfellingu. Hann segir að þótt 12 kg. séu ekki tiltakanlega mikið magn sé málið þó mjög alvarlegt þar sem starfsemin hafi verið sérstaklega vel skipulögð og náðst hafi að afgreiða svo margar pantanir. Hann mun fara fram á fangelsisdóm yfir flestum tólfmenninganna.

Hannes Haraldsson, fréttaritari sigurfreyr.com í Kaupmannahöfn. Texti með mynd: Guðmundur Sigurfreyr.



Valdaránið
Fíkniefnasirkusinn
Viðhorf indíána
Jesú & sveppurinn
Þorsteinn Víkingur
Hamplygar
"Hörðu efnin"
Hass & heilsa
Sálhrifalyf
    | Forsíða  | Álit annarra  | Um höfundinn  | Tölvupóstur  | Tenglasafnið | Gestabókin | Spjall |
© Guðmundur Sigurfreyr Jónason