|
Reykjavík, 18. júní 2002, Morgunblaðið
Ógnvænlegir atburðir hafa átt sér stað í hinni friðsömu höfuðborg Íslands. Á slaginu kl. 9.00 í gærmorgun var fréttatími Ríkisútvarpsins rofinn og ókunn rödd tilkynnti að búið væri að setja ríkisstjórn landsins ,,í verndað umhverfi" eins og það var orðað. Byltingarsamtökin V.Í.R., Verndarar hins íslenska ríkisvalds, væru búin að taka fullveldi þjóðarinnar í sína vörslu. Á sömu stundu rofnuðu útsendingar allra annarra ljósvakamiðla á landinu, bæði útvarps- og sjónvarpsstöðva. Á skrifandi stundu er margt enn á huldu og atburðarás óljós, en víst er að ekki er um sjúklegan brandara að ræða. Hið ótrúlega hefur gerst. Vopnaðir einstaklingar hafa hrifsað völdin af lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Íslands með ofbeldi!
 |
Óstaðfestar fregnir herma að þetta sé maðurinn sem leiddi hið blóðuga valdarán á Íslandi 17. júní sl. Í hópi byltingarmanna gengur hann undir dulnefninu Pezkall en ekki hefur ennþá tekist að bera kennsl á hann. |
Ekkert varð að fyrirhugaðri hátíðarræðu forsætisráðherra á Austurvelli, sem venju samkvæmt átti að hefjast klukkan 10 í gærmorgun. Þess í stað birtist hópur vopnaðra og grímuklæddra manna við Alþingishúsið og tók það í sína vörslu. Innandyra voru þá staddir flestir þingmenn sem á landinu eru og voru að búa sig undir að hlýða á ræðu forsætisráðherra. Að sögn sjónarvotta heyrðust bæði skothvellir og sprengingar innan úr húsinu. Heiðursvörður lögreglu á staðnum veitti ekki mótspyrnu enda óvopnaður. Óstaðfestar fregnir hafa einnig borist af því að sést hafi til vopnaðra manna við stjórnarráðshúsið, byggingu Hæstaréttar og á Bessastöðum.
Örlög forsætisráðherra og annarra ráðherra eru enn sem komið er á huldu en ekkert hefur til þeirra spurst síðan í gærkvöldi. Ekki er vitað hvort einhverjir þeirra voru staddir í Alþingishúsinu í morgun.
Útgöngubann í Reykjavík
Í hinni stuttu tilkynningu sem talsmaður byltingarmanna las í í útvarpið var lýst yfir útgöngubanni í Reykjavík, gerð var grein fyrir að byltingarmenn væru vopnaðir og þeir sem ekki færu að banninu gerðu svo á eigin ábyrgð. Einnig var tilkynnt að búið væri að loka leiðum til og frá höfuðborginni og að síðustu var tilkynnt um sjónvarpsávarp leiðtoga byltingarinnar síðar í dag. Jafnframt var var tekið fram að opnað yrði fyrir sjónvarpsútsendingu tímabundið kl. 11.30 vegna leiks Brasilíu og Belgíu í 16 liða úrslitum HM í knattspyrnu og að leikurinn yrði sýndur í opinni dagskrá í ríkissjónvarpinu.
Fjarvera lögreglu
Það hefur vakið athygli að ekkert sást til lögregluþjóna á götum borgarinnar í gærdag að heiðursverðinum við Alþingishúsið frátöldum. Ekkert er vitað um starfsreglur Landhelgisgæslu og Víkingasveitar við aðstæður sem þessar, enda hefur tæplega nokkur maður gert ráð fyrir atburðum sem þessum fyrirfram.
Allt með kyrrum kjörum á Miðnesheiði
Sjónarvottar við varnastöð NATO á Miðnesheiði segja þar allt með kyrrum kjörum. Þó hefur vakið athygli að engir íslenskir lögregluþjónar stóðu vakt í hliðinu í morgun og að bandarísku hermennirnir þar stóðu vaktina í fullum herklæðum með sjálfvirka riffla og í skotheldum vestum.
Nánari fréttum af atburðum verður komið á framfæri eftir því sem þær berast.
|