|
|
 |
| Vísindi |
 |
|
 |
Wilhelm Reich - Frumkvöðull og hneykslunarhella
Wilhelm Reich var austurrískur vísindamaður sem þróaði á
kerfisbundinn hátt heillandi og umdeilda kenningu um alheimslega lífsorku sem hann nefndi orgon.
Strax á fjórða áratugnum sagði hann fyrir um stórfelldar breytingar í kynferðismálum og
samskiptum innan hjónabandsins og fjölskyldunnar. Hann setti fram djarfar tillögur varðandi
uppeldismál, menntamál og stjórnmál sem fyrst nú er verið að taka til alvarlegrar umhugsunar.
Uppgötvanir hans á sviðum eins og læknisfræði, líkamstjáningu og sambandi líkama og hugar hafa
haft djúp áhrif á vísindi og menningu okkar tíma ... nánar > |
 |
Heildræn heilsufræði
Á síðastliðnum tveimur áratugum hefur átt sér stað víðtæk endurskoðun á
ýmsum þáttum heilbrigðismála nútímans. Ein af mörgum afleiðingum þessa endurmats er stefna innan
heilsufræðinnar sem nefnd hefur verið heildræn heilsufræði (holistic health). Innan vébanda
hennar má finna margvíslegar lækningaraðferðir af ólíkum uppruna, sumar ævafornar.
Nálastungulækningar, heilun, dáleiðsla, lífefli, makróbíótik, nudd, tónlistarlækningar,
Alexandertækni, slökun og Gestalt-sálarfræði eru dæmi um lækningaleiðir innan ramma
heildrænnar heilsufræði ... nánar > |
 |
Ofurnám - Bylting í námstækni
Ofurnám er ný námsaðferð sem vísindamaðurinn dr. Georgi Lozanov hannaði eftir tuttugu
ára rannsóknir á lífeðlisfræðilegum áhrifum jóga, vestrænni sjálfsefjun, slökunartækni og
tónlistarlækningum. Dr. Lozanov fann út að mögulegt er að kenna nemendum meira en talið hefur verið
eðlilegt með því að fara handan við þann múr sem veldur því að 96% heilans er lítt notaður. Hann uppgötvaði námsaðferð sem eykur lærdómshraða
300% og eykur varanleika þess sem lært er. Þessi einstaka námstækni nær til greindra sem tornæmra,
ungra sem aldraða og krefst að auki ekki ...nánar > |
 |
|
|