Biblían er ein af þeim bókum sem víða er til, en fáir nenna að
lesa. Hún er sögð staglsöm og leiðinleg. Að meginefni er hún þrautarsaga
gyðinga; grimmdarlegar lýsingar á sigrum þeirra og ósigrum, með vænum skammti
af úreltum siðapredikunum, óræðum spádómum og fúllyndum guði sem gyðingar
nefna Jehóva. Trúarlegt gildi hennar er einkum talið fólgið í frásögnum af ævi
og kenningum Jesú frá Nasaret. Margt af því sem haft er eftir Jesú í
guðspjöllunum er kunnugt, og þykir þess vert að til þess sé vitnað á helgidögum.
Öðru er þó sjaldnar vikið að. Þannig er t.d. um fyrirheitið sem Jesús gaf um
að koma aftur til jarðarinnar.
Uppstigningardagur er sá dagur kirkjuársins sem helgaður er
himnaför Jesú Krists. Um uppstigninguna segir í Postulasögunni:
Og er hann hafði talað þetta, varð hann upp numin,
að þeim ásjáandi, og ský nam, hann frá augum þeirra. Og er þeir störðu til
himins, þegar hann fór burt, sjá, þá stóðu tveir menn hjá þeim í hvítum
klæðum, er sögðu: Galilíumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi
Jesús, sem var upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér
sáuð hann fara til himins.
Flestir eru þó þeirrar skoðunar að hér sé ekki um sanna
frásögn að ræða, heldur helgisögn eða fagran tilbúning, sem ekki sé mark á
takandi. Á sama hátt eru fáir sem vænta endurkomu Krists, ef frá eru taldir
kreddufullir bókstafstrúarmenn, sem bíða í ofvæni eftir dómsdegi. Auðvitað í
þeirri trú að þeim bjóðist eilíf sæluvist í himnaríki, á meðan þorri mannkyns
stiknar í logum helvítis. Það eru ekki einungis efahyggjumenn sem telja seinni
endurkomu Krists skáldlegan heilaspuna heldur hefur sú skoðun rutt sér meir og
meir til rúms innan kirkjunnar sjálfrar.
 |
Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með
hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum og sögðu:
,,Spáðu nú, Kristur, hver var að slá
þig?"
Mattheus 26:67 |
Herra Sigurbjörn Einarsson biskup telur t.d. trúna á endurkomu
Krists, bera vott um ,,sjúkleg heilabrot", svo notuð séu hans eigin orð. Hann
segir ennfremur: ,,Og allar tilraunir til þess að finna kenningu um tvöfalda
endurkomu hans stoð í Nýja testamentinu eru fálm eitt."Það þarf
hins vegar ekki að lesa lengi í guðspjöllunum til að uppgötva að þessi orð
séra Sigurbjarnar eru byggð á misskilningi, ef ekki viljaleysi til að skilja
rétt.
Í Nýja testamentinu segir Jesús Kristur fyrir um eyðileggingu
Jerúsalemborgar og helgidóms hennar, musterisins. Sá spádómur rættist árið 70
e. Kr. Kristur skyggnist jafnframt lengra inn í framtíðina. Í 24. kapítula
Mattheusarguðspjalls, og samsvarandi kapítulum í guðspjöllum Markúsar og
Lúkasar lýsir Jesús Kristur rækilega þeim kringumstæðum sem einkenna ,,hina
síðustu daga" og verði undanfari komu mannssonarins. Hann segir að fram á
sjónarsviðið komi falsspámenn og falskristar sem kenni í hans nafni, en leiði
marga í villu. Þjóð mun rísa upp gegn þjóð og konungsríki gegn konungsríki.
Miklir jarðskjálftar verða, hallæri og drepsóttir og voðafyrirburðir á ýmsum
stöðum. Kærleikur manna á milli mun minnka, siðleysi og lestir margs konar
aukast. Ófremdarástandið verður alþjóðlegt því það mun koma ,,yfir alla menn,
sem byggja gjörvalla jörð"(Lúk.21.35).
"Prestar hafa sumir fyrir satt að fyrirheitið um endurkomu Jesú Krists
hafi ræst, þegar postularnir fylltust heilögum anda, aðrir boða að kirkjan sem
slík sé í raun Kristur endurkominn."
Kristur segir einnig um komandi
tíma: ,,Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða yfir því, er koma mun yfir
heimsbyggðina, því að kraftar himnanna munu bifast." Síðasta málsgreinin hér
er athyglisverð. Hvað getur Kristur átt við með orðunum ,,kraftar himnanna"?
Guðspjöllin voru upphaflega rituð á grísku og þar er sagt að ,,kraftar
úranusar munu bifast". Fyrir því eru margir þeirrar skoðunar að með þessum
orðum sé Kristur að vísa til atómorkunnar. Úraníum er einmitt notað í atóm- og
vetnissprengjur og sem orkugjafi í kjarnorkuofnum. ,,Kvíðinn yfir því, er koma
mun yfir heimsbyggðina" hefur síðustu áratugi verið eitt helsta áhyggjuefni
fólks um heim allan.
Jesús hefur einnig á orði:
Og þá mun tákn mannssonarins sjást á himninum; og þá
munu allar kynkvíslir jarðarinnar kveina, og þær munu sjá mannssoninn
komandi á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.
Má vænta endurkomu Krists?
Torvelt er að túlka orðin á annan veg en að Kristur heiti því
að snúa aftur til jarðar. Allur þorri guðfræðinga lætur sér þó fátt um finnast
og staðhæfir að endurkomuna beri að skilja í óeiginlegri eða yfirfærðri
merkingu. Þeir hafa sumir fyrir satt að fyrirheitið um endurkomu Jesú Krists
hafi ræst, þegar postularnir fylltust heilögum anda, aðrir boða að kirkjan sem
slík sé í raun Kristur endurkominn. Þessar hugmyndir stangast að vísu á við
það sem í guðspjöllunum stendur, en einhverju verður til að svara, því enginn
trúir því lengur í fullri alvöru að Jesús komi aftur.
 |
Á hinum síðustu dögum munu koma spottarar
með spotti, er framganga eftir eigin girndum og segja: Hvað verður úr
fyrirheitinu um komu hans? Því að frá því að feðurnir [postularnir] sofnuðu [dóu] stendur allt við sama eins og frá upphafi.
Pétursbréf 3:3-5 |
Því er ekki að neita að prestum er þónokkur vorkunn í málinu.
Vantrú þeirra er skiljanleg. Er hægt að ætlast til að nokkur maður með heilu
viti trúi því að Kristur hafi horfið til himna á skýjabólstri og komi þaðan
aftur svífandi á skýi? Skringisögur af þessu tagi samrýmast einfaldlega ekki
niðurstöðum vísindanna. Ef til vill hefur Kristur séð ástandið fyrir þegar
hann andvarpar sáran og segir: ,,Mun þá mannssonurinn finna trúna á jörðinni,
er hann kemur?" Í Pétursbréfi er einnig vikið að vantrúnni á
endurkomu Jesú Krists. Þar segir: ,,Á hinum síðustu dögum munu koma spottarar
með spotti, er framganga eftir eigin girndum og segja: Hvað verður úr
fyrirheitinu um komu hans? Því að frá því að feðurnir sofnuðu [þ.e.
postularnir dóu] stendur allt við sama eins og frá upphafi."
Skýstólpar á himni
Þess ber að geta að þessi dularfullu ,,ský" koma við sögu á
fleiri stöðum í Biblíunni. Í Nýja testamentinu segir frá því að skömmu áður en
Kristur var krossfestur, tók hann nokkra lærisveina sína með sér upp á hátt
fjall. Þar ummyndaðist hann þá að þeim ásjáandi og Móses og Elía birtust þeim
og töluðu við Krist. ,,Meðan hann var enn að tala, sjá, þá skyggði bjart ský
yfir þá, og sjá, rödd úr skýinu sagði: Þessi er minn elskaði sonur, sem eg
hefi velþóknun á; hlýðið á hann."
"Í Gamla testamentinu er á ýmsum stöðum greint frá því hvernig
guð opinberar sig í gegnum ,,ský" eða ,,eldstólpa" á himni."
Í Postulasögunni kemur fram áþekkt fyrirbæri þegar
fjöldamorðinginn Sál varð fyrir vitrun á leið sinni til Damaskus og tók trú á
Jesúm Krist. Sál eða Páll postuli, eins og hann var síðar nefndur, lýsir
viðburðinum þannig: ,,[Eg sá], á veginum, um miðjan dag, ljós af himni sólu
bjartara leiftra um mig og þá, sem mér voru samferða. Og er vér allir féllum
til jarðar, heyrði eg rödd, er sagði við mig á hebreska tungu: Sál, Sál, hví
ofsækir þú mig?" Páll segir einnig frá því að ljómi ljóssins sem leiftraði um
hann hefði verið þvílíkur að hann blindaðist og urðu förunautar hans að leiða
hann til Damaskus.
Í Gamla testamentinu er á ýmsum stöðum greint frá því hvernig
guð opinberar sig í gegnum ,,ský" eða ,,eldstólpa" á himni. Í för Ísraelsmanna
frá Egyptalandi til fyrirheitna landsins ,,gekk [Drottinn] fyrir þeim á daginn
í skýstólpa, til að vísa þeim veg, en á nóttunni í eldstólpa, til að lýsa
þeim, svo að þeir gætu ferðast nótt sem dag; skýstólpinn veik ekki frá fólkinu
á daginn, né heldur eldstólpinn á nóttunni". Ljóst er að
Ísraelsmenn fylgdu fyrirbærinu eftir hvert sem það fór. ,,Og hvert sinn, er
skýið hófst upp frá tjaldinu lögðu Ísraelsmenn upp; og þar sem skýið nam
staðar, þar settu Ísraelsmenn herbúðir."
Eru ,,vagnar Guðs" geimskip?
Á einum stað segir frá því þegar Móses leiddi fólk sitt að
Sínaífjalli til að kynna það fyrir Guði. Það er engu líkara en að ,,skýið"
hafi lent á fjallinu, því ,,þykkt ský lá á fjallinu" og ,,var allt í einum
reyk, fyrir því að Drottinn sté niður á það í eldinum; mökkurinn stóð upp af
því, eins og reykur úr ofni, og allt fjallið lék á reiðiskjálfi".
Á öðrum stað er greint frá því að Móses hafi ,,gengið mitt inn í skýið" og
dvalist þar í fjörutíu sólarhringa. Þetta minnir á frásögnina af Elía, sem var
numinn af Guði upp til himna í ,,eldlegum vagni." Í Sálmunum kemur
fram sú skoðun að ,,skýstólpinn" sé farkostur Guðs. Guð ,,gjörir ský að vagni
sínum, sem fer um á vængjum vindarins." Jeremía segir ennfremur:
,,Sjá, eins og ský þýtur hann áfram og vagnar hans eru eins og
vindbylur."
Öllum má ljóst vera að ,,ský" þau sem hér eru til umræðu eru á
engan hátt sambærileg við hnoðra þá sem sjást á himni á degi hverjum.
,,Skýið", sem leiddi Ísraelsmenn yfir eyðimörkina, sem Móses gekk inn í, sem
flutti Jesúm til himna, sem sló Pál blindu, minnir öllu frekar á fyrirbæri
þau, sem sést hafa á himni á undanförnum áratugum og nefnd eru fljúgandi
diskar.
Ef marka má lýsingar sjónarvotta eru hin torkennilegu geimför
oft og tíðum, sem egglaga ský að degi og gefa frá sér rósrauðan bjarma þegar
þau sjást þjóta áfram að næturlagi. Dæmi eru um að fólk, sem hafi komið of
nálægt slíku geimfari, hafi verið slegið blindu sökum ofbirtu, líkt og Páll
postuli forðum. ,,Eldvagnarnir" hafa sést í nær öllum löndum heims og
vísindamenn, sem rannsaka þessi mál staðhæfa að þeir sjáist nær vikulega
einhvers staðar á jörðinni.
Vísindamenn rannsaka framandi loftför
 |
Þann 7. janúar rakst belgískur kaupsýslumaður á þessar utanjarðarverur í Warneton við landamæri Frakklands og Belgíu. Hann fylgdist með þeim úr bíl sínum og sá þær fara ásamt þriðju verunni um borð í geimskip sem hvarf jafnharðan á brott. |
Á undanförnum árum hafa sérfræðingar rannsakað skýrslur sem
fram hafa komið um ókennda fljúgandi hluti. Hér verður greint frá niðurstöðum
rannsóknarnefndar er franska stjórnin skipaði til að kanna umrædd fyrirbæri.
Claude Poher, yfirmaður eldflaugadeildar geimrannsóknamiðstöðvarinnar í
Toulouse, veitti rannsóknarnefndinni forstöðu og starfaði hún í fjögur ár.
Nefndin tók til meðferðar um þúsund ,,trúverðugar" skýrslur, þar af yfir tvö
hundruð frá Frakklandi. Rannsóknarnefndin tók tillit til aðstæðna hverju
sinni, svo sem veðurskilyrða, hvort loft var skýjað o.s.frv. er hlutirnir
sáust, og hvort þeir sáust yfir þéttbýlissvæðum eða óbyggðu landi.
Í sjötíu af hundraði tilvika voru hinir ókenndu hlutir séðir
samtímis af tveimur eða fleiri mönnum og í nokkrum tilvikum jafnvel af íbúum
heilla borga. Sjáendur ,,hlutanna" voru menn úr öllum starfsgreinum.
Átta af hverjum tíu mönnum, sem sáu ,,fljúgandi diskana",
fullyrða að þeir hafi verið egglaga og aðeins tveir af hverjum tíu sáu
flugtækin með annarri lögun.
Í 70% tilvika sáust ,,hlutirnir" að næturlagi og voru þá
rósrauðir á lit, en þeir sem sáust í dagsbirtu voru með málmgljáa, samkvæmt
skýrslum sjónarvotta.
Yfirleitt var um að ræða flugtæki sem virtust vera milli 10 og
30 metrar að þvermáli, að áliti sjónarvotta, og hreyfðust algerlega
hljóðlaust. 25% álíta sig hafa séð ,,diska" sem fóru hægt yfir og enn aðrir
sáu ,,diska" sem þeir telja að hafi farið með óvenjulegum hraða. Í 50% tilvika
telja sjónarvottar að flugstefnan hafi verið ,,óvenjuleg" ef miðað er við flug
þekktra gerða af flugvélum. Að lokum fullyrða um 20 af hundraði sjónarvotta að
þeir hafi verið viðstaddir lendingu ,,fljúgandi diska".
Eldvagnar yfir Íslandi
"Ef marka má lýsingar sjónarvotta eru hin torkennilegu geimför
oft og tíðum, sem egglaga ský að degi og gefa frá sér rósrauðan bjarma þegar
þau sjást þjóta áfram að næturlagi."
Þó að til séu ritaðar heimildir frá ýmsum tímum um óþekkta
furðuhluti á himni, fóru frásagnir af viðlíkum fyrirbærum ekki að vera
almennar fyrr en við lok seinni heimsstyrjaldar.
Talið er að fljúgandi diskar hafi fyrst sést hér á landi, svo
vitað sé, 13. júní 1947. Það sama ár sáust sams konar fyrirbæri í fyrsta sinn
í Bandaríkjunum og reyndar í mörgum öðrum löndum heims. Í upphafi fimmta
áratugarins kvað svo rammt að þessu hér á landi að fólk tók að nefna
fyrirbrigðin ,,gljáský". Síðari hluta ársins 1952, sáust skínandi loftför víðs
vegar um land, og sá fjöldi fólks fyrirbærin. Um atvikin var töluvert ritað í
dagblöðum á þeim tíma. Í Morgunblaðinu, 29. október 1952, er t.d. greint frá
óþekktum loftförum yfir Akureyri:
,,Síðastliðinn sunnudag [þ.e. 26. október] sáu allmargir
bæjarbúar eldhnetti á himni, er flugu með feiknahraða í nokkurri hæð fyrir
austan bæinn. Himinn var alskýjaður, 600-1.000 metra skýjahæð, sem næst logn
og um 6 stiga hiti. Eftir lýsingu sjónarvotta virðist sem eldhnettirnir hafi
hagað sér með líku sniði og fréttir erlendis frá lýsa hinum alkunnu fljúgandi
diskum."
3. nóvember birtir Tíminn frásögn af áþekku fyrirbæri, sem
sást á Austfjörðum. Þar segir undir fyrirsögninni ,,Hundruð Austfirðinga sáu
eldkringlu geysast inn yfir landið.":
,,Klukkan 5-10 mínútum yfir fimm á sunnudagskvöldið sáu
Austfirðingar eldhnött mikinn og ókennilegan svífa inn yfir landið úr austri
og hverfa inn yfir hálendið í vestri. Ber öllum sjónarvottum, sem munu vera
svo hundruðum skiptir, saman um það, að þetta hafi ekki líkst venjulegu
stjörnuhrapi. Af loftfara þessum lagði skæra birtu, er sló á land og loft, og
aftur úr honum var ljósrák eða rákir, er sumir töldu líkjast
eldglæringum."
Þórður Þórðarson, þáverandi oddviti Hrunamannahrepps, sá
skömmu síðar ,,eldhnött" sem fór á feiknahraða rétt yfir heimili hans í
Syðra-Langholti. Honum segist svo frá: ,,Allt í einu sá ég eldhnött sem kom úr
suðri með geysihraða. Hann fór rétt yfir eða við hornið á íbúðarhúsinu, sem ég
var í og hvarf mér til norðurs yfir útihús, sem eru norðar og standa nokkru
hærra en íbúðarhúsið, enda virtist mér hann ekki fara í meir en tveggja metra
hæð yfir þök þeirra. Hnöttur þessi virtist mér sem hlemmur í laginu og nokkru
stærri en stór súpudiskur. Hann var hvítglóandi og virtist blágrænn baugur
umhverfis hann."
 |
Þessi mynd af ,,fljúgandi diski" var tekin úr farþegavél Avena-flugfélagsins í Venesúela árið 1963. Á myndinni sjást greinilega skuggar ,,disksins" og flugvélarinnar. Þetta loftfar minnir á ,,eldhnöttinn" sem Þórður Þórðarson, oddviti Hrunamannahrepps, sá árið 1952 yfir heimili sínu í Syðra-Langholti. |
Þessar og aðrar yngri lýsingar á einkennilegum fyrirbærum á
himni gefa okkur tilefni til að halda að við séum ekki ein í alheiminum. Hinn
23. desember 1995 birti Morgunblaðið eftirfarandi frétt undir fyrirsögninni:
,,Bjart ljós með rauðleitum blæ":
,,Torkennilegt ljós sást frá flugvellinum á Blöndudósi á fimmta
tímanum á fimmtudag. Birgir Ingólfsson einkaflugmaður segist fyrst hafa haldið
að flugvél væri að koma inn til lendingar. Hann fylgdist svo með því þegar
ljósið hvarf á bak við Víðidalsfjall, birtist aftur og hvarf smám saman í
suðvesturátt. Ljósið var bjart með rauðleitum blæ og fór skrykkjótta leið lágt
á himninum. Svipað ljós sást fyrir utan Borgarnes upp úr kl. 18. Hann segist
hafa hringt í bónda í Vatnsdal. Sá hafi farið út og séð ljósið. ,,Bóndinn hélt
svo áfram að fylgjast með þegar ljósið hvarf mér á bak við Víðidalsfjallið
fimmtán til tuttugu mínútum eftir að ég sá það fyrst. Hann sagði mér að ljósið
virtist stoppa yfir fjallinu og lýsa upp hluta af því," segir hann. ,,Þegar ég
var að búa mig undir að fara heim tíu til fimmtán mínútum seinna sá ég svo
ljósið koma aftur fram undan Víðidalsfjallinu og stefna í vestur eða
norðvestur. Ljósið bar svo lágt að um þriðjungurinn af fjallinu var fyrir
ofan. Ég hringdi í flugmálastjórn þegar ljósið var farið að fara í
suðvestlægari stefnu inn á flugleiðina til suðurs og hélt kannski að þarna
væri þyrla með leitarljós í æfingaflugi. Þeir könnuðu málið hjá
Landhelgisgæslu, Keflavíkurflugvelli og flugturni og ekki var vitað um neina
þyrlu." Birgir segir að ljósið hafi smám saman fjarlægst og dofnað suðvestur.
Hann hafi haft samband við mann í Borgarnesi. Maðurinn hefði séð áberandi ljós
á himni í norðri fara í vestsuðvestur og hverfa í vesturátt upp úr kl. 18.
Eftir atburðinn segist Birgir ekki hafa hugmynd um hvernig megi skýra ljósið.
Hann hafi séð stjörnuhrap og halastjörnu en ljósið hafi ekki líkst því. Ljósið
hafi verið lágt á himni, í um 2.000 til 2.500 feta hæð til að byrja með, og
hafi næst komið 10 til 15 mílur að flugturninum."
Brauð af himnum
"Árið 1961 staðhæfði t.d. Joseph Simonton, sem býr í
Wisconsin í Bandaríkjunum, að geimskip hafi lent í húsagarði sínum og
utanjarðarvera gengið út og gefið sér brauðsneið!"
Verulegur hópur fólks í ýmsum löndum segist hafa orðið vitni
að lendingu óþekktra loftfara og jafnvel staðið augliti til auglitis við verur
frá öðrum stjörnum. Árið 1961 staðhæfði t.d. Joseph Simonton, sem býr í
Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum, að geimskip hafi lent í húsagarði sínum og
utanjarðarvera gengið út og gefið sér brauðsneið! Til að kanna nánar þessa
ótrúlegu frásögn sendi bandaríski flugherinn dr. J. Allen Hynek á vettvang.
Dr. J. Allen Hynek er stjörnufræðingur og var á þeim tíma vantrúaður á
lýsingar af fljúgandi furðuhlutum og flokkaði þær undir missýningar. Hann
færði vísindamönnum flughersins hina fágætu brauðsneið til rannsóknar og kom í
ljós að hún var að öllu leyti eðlileg og innihélt næringarríkt heilhveiti. Dr.
Hynek álítur að reynsla Joseph Simontons hafi verið raunveruleg. Dr. Jacques
Vallee rannsakaði jafnframt þennan atburð og er sannfærður um að Simonton hafi
sagt satt. Simonton hefur sjálfur enga hugmynd hvers vegna hann, af öllum
íbúum jarðar, var valinn til að veita þessari óvenjulegu gjöf viðtöku.
Vísindamenn hafa rannsakað gaumgæfilega frásagnir fólks af
kynnum af geimverum. Í því skyni beittu þeir lygamælingum og ítarlegum
yfirheyrslum, líkt og um rannsókn á glæpamáli væri að ræða, einnig dáleiðslu
og læknisfræðilegu mati á andlegri og líkamlegri heilsu viðkomandi
einstaklinga. Þeir gátu enga skýringu gefið á því hvað orsakaði reynslu
fólksins. Engu að síður eru margir vantrúaðir á að skynsemi gæddar verur frá
öðrum hnöttum ferðist um geiminn í geimskipi og komi til jarðarinnar þegar
þeim býður svo við að horfa.
Eru englar utanjarðarmannkyn?
 |
Joseph Simonton virðir fyrir sér brauðsneiðina sem meint utanjarðarvera gaf honum formálalaust. Þessi sérstæða uppákoma minnir á orð Jesú Krists: ,,Ég er brauðið sem niður steig af himni." Sjá Jóhannes 6:41-52. |
Englar eru annað fyrirbæri í Biblíunni sem fæstir hafa nokkra
trú á. Orðið engill er dregið úr grísku og merkir boðberi. Á málverkum
kirkjunnar eru englar yfirleitt hafðir með vængi, en í Biblíunni eru þeir
aldrei útskýrðir þannig. Samkvæmt Ritningunni eru englar mennskir í útliti,
fullkomnari verur í mannsmynd, sem koma að ,,ofan"; frá öðrum heimi. Verurnar
grípa skyndilega inn í rás atburðanna á afgerandi hátt og hverfa að því loknu
jafnharðan. Svo virðist sem samneyti þeirra við jarðarbúa sé haft í algeru
lágmarki. Í öndverðu fóru ,,englarnir" hins vegar ekki huldu höfði. Í 1.
Mósebók er sagt frá þeim tíma er ,,synir Guðs höfðu samfarir við dætur
mannanna og þær fæddu með þeim sonu." Þar segir: ,,Er mönnunum tók að fjölga á
jörðinni og þeim fæddust dætur sáu synir Guðs, að dætur mannanna voru fríðar,
og tóku sér konur meðal þeirra, allar sem þeim geðjuðust."
"Í öndverðu fóru ,,englarnir" hins vegar ekki huldu höfði. Í 1.
Mósebók er sagt frá þeim tíma er ,,synir Guðs höfðu samfarir við dætur
mannanna og þær fæddu með þeim sonu.""
Jesús Kristur fullyrðir margoft að hann sé í tengslum við
verur frá öðrum heimi. Hann sagði við samtíðarmenn sína: ,,Þér eruð neðan að,
ég er ofan að. Þér eruð af þessum heimi, ég er ekki af þessum heimi." Kristur
sagði jafnframt: ,,Sá sem kemur að ofan, er yfir öllum. Sá sem er af jörðu,
hann er af jörðu og talar af jörðu. Sá sem kemur af himni, er yfir öllum og
vitnar um það, sem hann hefur séð og heyrt og enginn tekur á móti vitnisburði
hans."
Það má til sanns vegar færa að utanjarðarverur hafi haft hönd
í bagga með upprisu Jesú Krists. Í Lúkasarguðspjalli segir frá því að þegar
Kristur ummyndaðist á fjallinu stóðu tveir menn hjá honum og ,,ræddu um
brottför hans, er hann skyldi fullna í Jerúsalem." Mennirnir, sem
lærisveinarnir álitu vera Móses og Elía, hurfu á brott með ,,skýi" eftir að
hafa ráðfært sig við Krist um upprisuna. Þá er kunnugt að þegar María
Magdalena og fleiri konur fóru til að líta á gröf Jesú voru þar fyrir ,,tveir
menn í leiftrandi klæðum". Í Jóhannesarguðspjalli er talað um ,,tvo engla í
hvítum klæðum". Í Mattheusarguðspjalli er sagt frá því að jarðskjálfti hafi
orðið ,,því engill Drottins sté niður af himni" og ,,var sem elding ásýndum og
klæðin hvít sem snjór."
Hvað verður úr fyrirheitinu um komu
hans?
Utanjarðarverur koma einnig við sögu á Olíufjalli þegar Jesús
Kristur yfirgefur jörðina í ,,skýi" að lærisveinum sínum ásjáandi. Þá stóðu
hjá þeim tveir menn í hvítum klæðum og sögðu: ,,Galilíumenn, hví standið þér
og horfið til himins? Þessi Jesús, sem var upp numinn frá yður til himins, mun
koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins." Í Opinberun Jóhannesar
segir að Jesús Kristur komi aftur sem sigurvegari og að með honum verði
,,hersveitirnar, sem á himni eru." Kristur segir sjálfur að ,,eins og elding,
sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars, svo mun Mannssonurinn
verða á degi sínum... En þann dag og stund veit enginn, hvorki englar á himnum
né sonurinn, enginn nema faðirinn einn."
|