|
|
 |
| Fíkniefnamál |
 |
|
 |
Kannabis til lækninga
Þrátt fyrir að kannabisefni hafi um aldaraðir notið virðingar sem lyf hafa
þau frá því á fjórða áratugnum verið fordæmd og álitinn hættuleg fíkniefni. Á liðnum árum hefur
hins vegar færst í vöxt að læknar og sjúklingar með margvísleg mein geri kröfu um að þau fáist
út á lyfseðla. Eru hass og maríúana ef til vill undralyf framtíðarinnar? Hampjurtin, Cannabis sativa, var uppspretta trefjaefna í meir en tólf þúsund ár. Fyrr á öldum voru segl, reiði og þéttiefni skipa, að veifum, flöggum og fiskinetum ógleymdum, iðulega unnin úr hampi og hamphroða. Fram á miðja nítjándu öld var ...nánar > |
 |
Kannabis og ný viðhorf í fíkniefnavörnum
Undanfarin misseri hefur umræða á Vesturlöndum um ávana- og fíkniefni tekið töluverðum
breytingum. Vaxandi efasemda hefur gætt um hvort að núverandi stefna í vímuefnamálum skili þeim
árangri sem stefnt er að í baráttunni gegn notkun og útbreiðslu ólöglegra fíkniefna. Af þessu
tilefni er saga kannabisefna rifjuð upp, en þau eru tvímælalaust það forboðna fíkniefni er nýtur
hve mestra vinsælda hér á landi. Jafnframt er vikið að röksemdum þeirra er vilja róttæka
endurskoðun á gildandi lögum um fíkniefni og á hvern hátt yfirvöld í ýmsum löndum hafa komið
til móts við nýjar áherslur í fíkniefnavörnum ...nánar > |
 |
Bábiljur og staðreyndir um kannabis
Það er ekki heiglum hent að henda reiður á öllu því sem sagt hefur verið um kannabis; hass og maríúana. Staðhæfingarnar eru margar og vægast sagt ólíkar, stundum algerlega ósamrýmanlegar. Margir neytendur kannabis halda því fram að efnið sé nánast skaðlaust og sumir ganga jafnvel svo langt að fullyrða að hampjurtin geti bjargað heiminum. Á hinum enda litrófsins eru svo hörðustu stuðningsmenn fíkniefnastríðsins sem fullyrða að kannabis sé hættulegt ,,eiturlyf" sem ryðji brautina fyrir önnur ólögleg vímuefni eins og LSD, amfetamín og kókaín. Persónulegri reynslu margra eyðni- og krabbameinssjúklinga er ... nánar > |
 |
|
|