|
|
 |
| Um ljósmyndina, höfundinn & annan óþjóðalýð |
 |
|
 |
Ljósmyndin hér til hliðar er tekinn með NOKIA-MXZ 200 vél með H3MAX aðdráttarlinsu í nágrenni
Rmeich, í Suður-Líbanon. Höfundur hennar er Arinbjörn Pétursson, alias Petersen, illræmdur
paparazzi-ljósmyndari, og annar af tveimur sem náðu að flýja af vettvangi eftir dauðaslys
Díönu prinsessu í París. Hann er nú eftirlýstur af INTERPOL fyrir margvísleg fólskuverk,
en þó einkum fyrir að féfletta einmana miðaldra konur með fagurgala sínum og rómuðum kynþokka.
Téður Arinbjörn, einnig þekktur sem Jarlinn, Skati og stundum Skatilókur meðal samverkamanna
í undirheimum, er talinn vera í felum einhvers staðar nálægt Rottne í Smálöndunum í Svíþjóð.
Samkvæmt heimildum frá Mossad, leyniþjónustu Ísraelsstjórnar, býr hann þar með eiginkonu sinni
til margra ára, Jóhönnu Jónasdóttur. Um Jóhönnu þessa má lesa í skýrslu Fox Mulder´s "The only
X-File I don´t want to believe". Það eina sem alríkislögreglumaðurinn Fox Mulder gat stunið upp
þegar ég tilkynnti honum að Jóhanna væri ennþá á lífi var: "Oh, no, don´t say it´s true!" og
síðan: "God Save Us All!
Um höfundinn er það annars að segja, að samkvæmt nýjustu heimildum, er hann ásamt bróður
sínum Þorláki Einari Jónassyni, alias Bói, stundum Einar, einhvers staðar í Suður-Ameríku eða
Ástralíu á æðisgengnum flótta undan eiginkonum og barnsmeðlögum, og án efa að undirbúa eitt
bankaránið í viðbót.
|
|
|