Þrátt
fyrir að kannabisefni hafi um aldaraðir notið virðingar
sem lyf hafa þau frá því á fjórða
áratugnum verið fordæmd og álitinn hættuleg
fíkniefni. Á liðnum árum hefur hins vegar færst
í vöxt að læknar og sjúklingar með margvísleg
mein geri kröfu um að þau fáist út á
lyfseðla. Eru hass og maríúana ef til vill undralyf framtíðarinnar?
Hampjurtin, Cannabis sativa,
var uppspretta trefjaefna í meir en tólf þúsund
ár. Fyrr á öldum voru segl, reiði og þéttiefni
skipa, að veifum, flöggum og fiskinetum ógleymdum, iðulega
unnin úr hampi og hamphroða. Fram á miðja nítjándu
öld var rösklega áttatíu prósent af pappír
í heiminum búinn til úr hampi. Hampur var notaður
í dúka og vefnað margs konar enda rakadrægari,
teygjanlegri og endingarbetri en bómull. Olíumálverk
Rembrandts, Van Goghs og annarra meistara listasögunnar voru máluð
á hampstriga. Sama má segja um litina sem þeir notuðu
því nánast öll málning var unnin úr
fræolíu jurtarinnar. Hampfræin voru auk þess nýtt
í matargerð, í grauta og bakstur, enda rík af
eggjahvítuefnum. Úr hampi var unnin ljósaolía
og var hún lengi vel útbreiddasta og skærasta lampaolían
sem völ var á.
"Frá árinu 1842
til síðustu aldamóta var kannabis innhald rúmlega
helming allra lyfja sem notuð voru í heiminum."
Hampjurtin gegndi jafnframt
mikilvægu hlutverki í læknisfræði í
nær fimm þúsund ár. Frá árinu 1842
til síðustu aldamóta var kannabis innhald rúmlega
helming allra lyfja sem notuð voru í heiminum. Breski læknirinn
William B. O´Shaughnessey var fyrsti Vesturlandabúinn til
að nota kannabis sem lyf. Hann kynntist notkun þess hjá
læknum á Indlandi þar sem hann starfaði sem prófessor
við læknaháskólann í Kalkútta. Eftir
að hafa gert tilraunir á dýrum og fullvissað sig
um meinleysi þess hóf hann að beita því gegn
flogaveiki, gigtveiki, hundaæði og stífkrampa. Í
skýrslu sem birt var 1839 fullyrðir hann að hamptiktúra
(kannabisblómhnappar í alkóhóllausn) sé
áhrifaríkt verkjalyf og að tilkoma þess muni valda
,,mikilli hrifningu meðal lækna um heim allan."
Þegar O´Shaughnessey
sneri aftur til Englands árið 1842 sá hann lyfsölum
fyrir miklu magni kannabisefna. Læknar í Evrópu og
Bandaríkjunum hófu fljótlega að fyrirskipa kannabis
við ýmsum sjúkdómum. Vitað er að Viktoría
Bretadrottning notaði það til að stemma stigu við
tíðaverkjum. Liðlega hundruð lærðra ritgerða
birtust í læknaritum um græðandi eiginleika kannabislyfja.
Árið 1890 tók breski læknirinn J.B. Reynolds saman
þrjátíu ára reynslu af notkun kannabis og komst
að þeirri niðurstöðu að það væri
með gagnlegustu lyfjum sem læknum stæði til boða.
Honum þótti sýnt að það kæmi að
liði við að lækna og fyrirbyggja mígreni og ráða
bót á astma, svefnleysi, taugapínu og þunglyndi.
Reynolds benti ennfremur á að virkni hamptiktúra héldist
mánuðum, jafnvel árum saman, án þess að
auka þyrfti lyfjaskammtinn. Kannabis naut einnig almennra vinsælda
sem hressingarlyf og var hægt að kaupa það í
ýmsum myndum í lyfjabúðum.
Undanhald hassmixtúranna
 |
Kvikmyndin Reefer Madness var hluti af ,,fræðsluherferð" Harry Anslingers og fíkniefnalögreglunnar og átti stóran þátt í að móta viðhorf almennings til hins ,,nýja eiturlyfs". Myndin fjallar um geðþekkan fjölskyldufaðir sem gengur fljótlega af göflunum eftir neyslu maríúana og myrðir alla fjölskyldu sína með exi! |
Við lok síðustu
aldar fóru vinsældir kannabislyfja hins vegar minnkandi. Styrkleiki
mixtúranna var breytilegur og viðbrögðin við munnlegri
inntöku þóttu reikul og ófyrirsjáanleg.
Á þessum tíma var ekki vitað hvert hið virka
innihald var og því erfitt að ráða magninu.
Uppgötvun sprautunnar og vaxandi notkun stungulyfja var önnur
ástæða fyrir því að áhugi á
kannabismixtúrum fór dvínandi. Hampur er óuppleysanlegur
í vatni og því ill mögulegt að brúka
afurðir hans til innspýtingar. Efnafræðilegur stöðugleiki
synthetískra lyfja gerði að verkum að aspirín,
klóral hýdrat og barbitúrlyf skipuðu brátt
þann sess sem kannabislyfin gerðu áður.
Nýju lyfin voru þó
ekki agnúalaus. Í Bandaríkjunum einum deyja árlega
á bilinu fimm hundruð til eitt þúsund manns af
völdum innvortis blæðinga sem rekja má til neyslu
aspiríns. Eiturverkanir og vanabindandi eiginleikar barbitúrlyfja
eru jafnframt alkunn. Eldri læknar kvörtuðu undan nýjungagirni
yngri lækna og töldu að fara ætti varlega í
að afskrifa kannabislyfin. Margir læknar héldu tryggð
við þau og árið 1920 var talið að þau
væru í þriðja sæti yfir algengustu lyfin sem
notuð voru á Vesturlöndum.
Herförin gegn hampi
Árið 1916 gaf
bandaríska landbúnaðaráðuneytið út
skýrslu þar sem fram kom að úr einum hektara af
hampi væri, á skemmri tíma og með minni tilkostnaði,
hægt að framleiða fjórfalt meira magn af pappír
en úr einum hektara af trjám. Pappírsgerð úr
hampi krefst þar að auki allt að sjöfalt minna magns
af mengunarvaldandi efnum en sambærileg framleiðsla úr
timbri. Tilraunir höfðu sýnt að pappír gerður
úr hampi var í hærri gæðaflokki, bæði
sveigjanlegri og endingarbetri, en pappír unninn úr trjákvoðu.
Gífurlegar tækniframfarir urðu á fjórða
áratugnum í vinnslu hamps til iðnaðarframleiðslu.
Árið 1936 var fundin upp skurðarvél sem gerði
mögulegt að sneiða, binda í bagga og greina trefjar
frá beðmi (sellulósi) hampplöntunnar á margfalt
meiri hraða en áður þekktist. Vísindamenn spáðu
því að innan örfárra ára yrði sjötíu
prósent af öllum pappír unninn úr hampkvoðu.
Einnig mætti vinna eldsneyti úr hampi er keppt gæti
við jarðefnaeldsneyti. Hampur yrði á nýjan leik
verðmætasta nytjaplanta heimsins
"Margir læknar héldu tryggð
við kannabislyfin og árið 1920 var talið að þau
væru í þriðja sæti yfir algengustu lyfin sem
notuð voru á Vesturlöndum."
Ekki voru þó
allir ánægðir með þessa framtíðarsýn.
Iðjuhöldurinn W.R. Hearst og forráðamenn Du Pont fyrirtækisins
óttuðust að hampur mundi keppa gegn timbursölu þeirra
og gerviefnaframleiðslu. Dagblöð og tímarit í
eigu Hearst hófu skipulega rógsherferð gegn hampi, sem
nú gekk undir mexíkanska slanguryrðinu ,,maríúana".
Almenningi var talið trú um að maríúana væri
vanabindandi og undirrót ofbeldisglæpa, geðveiki og greindarskorts.
Olíubaróninn Andrew Mellon, þáverandi fjármálaráðherra
og fjárhagslegur bakhjarl Du Pont samsteypunnar, skipaði fjölskylduvin
sinn Harry J. Anslinger sem yfirmann alríkisfíkniefnalögreglunnar.
Anslinger varð frægur af endemum í ofstækisfullri
baráttu sinni gegn leynivínsölum á bannárunum
og nú þurftu lögreglusveitir hans nýjan vágest
til að kljást við.
Anslinger tók starf
sitt föstum tökum. Hann þeyttist um þver og endilöng
Bandaríkin og hélt blaðamannafundi og fyrirlestra þar
sem hann sagði agndofa áheyrendum sínum hryllingssögur
af maríúananeyslu. Anslinger fullyrti að dæmi væru
um að einn reykur af þessu útlenska illgresi hefði
,,breytt saklausum kórdrengjum í blóðþyrsta
morðingja … [og að það] ylli óstjórnlegri
kynfýsn hvítra kvenna í garð varastórra
blökkumanna". Kvikmyndin ,,Brjálæði maríúanasígarettunnar"
(Reefer Madness) var framleidd að hans frumkvæði til að
upplýsa fólk um hvernig þetta ,,nýja dóp
sem væri hættulegra en heróín og kókaín"
leiddi óhjákvæmilega til sturlunar.
Skattalög um maríúanaviðskipti
 |
Í bókinni The Emperor Has No Clothes fjallar bandaríski rithöfundurinn, Jack Herer, um hvernig vímuefnið maríúana var notað á fjórða
áratugnum til að réttlæta bann á vinnsluhampi.
Þegar tækninýjungar höfðu bætt samkeppnisstöðu
hampframleiðenda komu olíu-, timbur- og gerviefnaframleiðendur
því til leiðar að hampur var bannaður hvort sem
var til iðnaðarframleiðslu eða lækninga. |
Samsærismönnunum
var ljóst að þrátt fyrir hræðsluáróður
gulu pressunnar yrði ekki vinnandi vegur að fá hampræktun
og hampsölu bannaða eftir hefðbundnum leiðum. Erindrekar
þeirra í fjármálaráðuneytinu unnu
í kyrrþey að nýrri skattalöggjöf um verslun
með maríúana. Markmið lagana var að greiða
hampiðnaðinum banahögg með feikiháu vöru-
og flutningsgjaldi. Jafnframt var læknum sem vildu tiltaka maríúana
handa sjúklingum sínum gert lífið leitt með
kvöðum um umfangsmikla skýrslugerð. Til að fyrirbyggja
að hampframleiðendur, læknar og aðrir er höfðu
hagsmuni að gæta fréttu af áformum stjórnvalda
voru vitnaleiðslur vegna lagasetningarinnar yfirleitt haldnar fyrir
luktum dyrum. Tveimur dögum áður en þjóðþingið
hugðist ganga til atkvæðagreiðslu um frumvarpið höfðu
læknasamtökin spurnir af því og sendu lögmann
sinn á vettvang. ,,Okkur kom ekki til hugar að maríúana,
sem blöðin hafa undanfarin tuttugu ár lýst sem banvænu
illgresi frá Mexíkó, væri í raun eitt
og sama efnið og læknar nefna kannabis," sagði hann þingheimi
í forundran.
Lögmaðurinn dró
í efa að yfirlýsingar um maríúanafíkn
og lögbrot maríúananeytenda ættu við rök
að styðjast. Fyrirspurnir til fangelsismálastofnunnar, barnaverndarstofu
og skólayfirvalda leiddu í ljós að engir þessara
aðila hefðu nokkurn tímann haft afskipti af neytendum maríúana.
,,Engin haldbær gögn hafa verið tilgreind sem réttlæta
hömlur á þetta mikilvæga lyf. Að okkar mati
nægir slúður úr vikublöðum ekki til að
sverta orðstír lyfs sem notað hefur verið hér
á landi farsællega í næstum heila öld."
Talsmaður læknasamtakanna gagnrýndi einnig leynimakkið
í kringum frumvarpið. ,,Við skiljum ekki ennþá,
herra fundarstjóri, hvers vegna þetta frumvarp var undirbúið
á laun í tvö ár án þess að nokkur
fengi vitneskju um það, jafnvel ekki starfstéttin sem
því er ætlað að þjóna."
Læknafélagið
kúgað til hlýðni
Harry J. Anslinger vann frumvarpinu
brautargengi með því að lesa orðrétt upplognar
frásagnir æsifréttablaðanna. ,,Maríúana,"
sagði hann ,,er ofbeldisfyllsta vímuefni í sögu
mannkyns." Máli sínu til stuðnings nefndi hann dæmi
um axarmorðingja sem hefði brytjað niður heila fjölskyldu
fjórum dögum eftir að hann reykti maríúana.
Hann fullyrti einnig að rekja mætti rúmlega helming allra
glæpaverka til neytenda maríúana. Málflutningurinn
var litaður kynþáttafordómum. Hann sagði þing-
heimi t.d. sögu af tveimur negrum sem hefðu tælt hvíta
stúlku til samræðis við sig ,,fyrir tilstilli maríúana
og satanískrar vúdú-tónlistar [djassins] með
þeim ósköpum að hún varð þunguð."
Andmæli læknasamtakanna féllu í grýttan
jarðveg. Frumvarpið varð að lögum í október
1937 og hampiðnaðurinn hrundi í kjölfarið eins
og til var ætlast.
"Áratuginn 1966-76
voru gerðar liðlega tíu þúsund vísindalegra
athugana víðsvegar um heiminn, þar af u.þ.b. fjögur
þúsund í Bandaríkjunum. Afraksturinn sýndi
ótvírætt að fullyrðingar um skaðsemi maríúana
voru stórlega ýktar."
Anslinger hóf nú
skipulegar ofsóknir á hendur bandarísku læknasamtökunum.
Hann gat ekki fyrirgefið þeim andófið og hugðist
kúga þau til hlýðni. Árið 1939 lögsótti
hann liðlega þrjú þúsund lækna fyrir
að hafa fyrirskipað deyfilyf að ófyrirsynju handa sjúklingum
sínum. Læknasamtökin sáu að þau áttu
við ofurefli að etja og sömdu frið við Anslinger.
Þau létu af stuðningi sínum við maríúana
með þeim árangri að næstu tíu árin
voru aðeins þrír læknar ákærðir
fyrir sömu sakir.
Vísbendingar um
heilnæmi maríúana
Á sjöunda áratugnum
færðist neysla maríúana í Bandaríkjunum
verulega í vöxt, einkum meðal ungs fólks. Miðað
við það sem á undan var gengið höfðu
foreldrar eðlilega áhyggjur af þróun mála
og kröfðust þess að alríkisstjórnin styrkti
vísindalegar rannsóknir er gæfu skýra mynd af
verkunum kannabis. Árið 1964 var dr. Raphael Mechoulam við
Tel Aviv-háskólann fyrstur manna til að greina tetrahýdrókannabínól
(delta-9 THC), efnasambandið, sem einkum veldur líffræðilegri
verkun kannabisplöntunnar. Nú fyrst var komin forsenda til
að meta áhrif kannabis á menn þannig að samband
milli inntöku magns og verkunar lægi ljóst fyrir. Yfirvöld
í ýmsum löndum hófu af kappi að fjármagna
rannsóknir á lyfhrifum kannabis. Áratuginn 1966-76
voru gerðar liðlega tíu þúsund vísindalegra
athugana víðsvegar um heiminn, þar af u.þ.b. fjögur
þúsund í Bandaríkjunum. Afraksturinn sýndi
ótvírætt að fullyrðingar um skaðsemi maríúana
voru stórlega ýktar. Einnig komu fram vísbendingar
um heilnæmi maríúana og hvernig einstaklingar með
allrahanda mein höfðu notað það sér til heilsubótar.
Viðhorf margra til neyslu kannabisefna tóku gagngerum breytingum
frá því sem áður var.
 |
Bill Clinton er gott dæmi um hræsnara af yfirgengilegustu tegund. Áður en hann settist á forsetastól sagðist hann ,,hafa reykt en ekki tekið ofan í sig". Á stjórnarárum hans var fíkniefnastríðið eflt til mikilla muna, og aldrei sem fyrr jafnmargir Bandaríkjamenn fangelsaðir fyrir smávægilegustu fíkniefnabrot, ekki síst sjúklingar og gamalmenni. Skömmu áður en hann lét af embætti sagði hann loks í viðtali við tímaritið Rolling Stones að líklega væri orðið tímabært að lögleiða maríúana! |
Dr. Lester Grinspoon, prófessor
í geðlækningum við Harvard-háskóla og
höfundur bókanna ,,Endurmatið á maríúana"
(Marihuana Reconsidered) og ,,Maríúana – Forboðinn læknisdómur"
(Marihuana, the Forbidden Medicine), lýsir eigin sinnaskiptum þannig:
,,Þegar ég hóf að rannsaka maríúana
árið 1967, var ég ekki í nokkrum vafa um að
það væri sérlega skaðlegur vímugjafi
sem væri því miður notaður af sívaxandi
hópi treggáfaðs ungs fólks er vildi ekki hlýða
á eða gat ekki skilið viðvaranir um hættur þess.
Ætlun mín var að afmarka vísindalega eðli og
umfang hættunnar. Næstu þrjú árin, á
meðan ég fór vandlega yfir lesmál vísindamanna,
lækna og leikmanna um efnið, tók afstaða mín
að breytast. Það rann upp fyrir mér að, ég,
líkt og margir aðrir í þessu landi, hafði verið
heilaþveginn. Trú mín á skaðsemi maríúana
byggðist ekki á traustum raunvísindalegum grunni. Þegar
ég hafði lokið heimildaleit minni, sem var undirstaða
nýrrar bókar, var ég orðinn sannfærður
um að kannabis væri talsvert skaðminna en tóbak og
alkóhól, algengustu löglegu fíkniefnin."
Kannabis í stað
róandi lyfja?
Aragrúi vísindalegra
rannsókna gáfu til kynna að nota mætti mörg
svonefndra kannabínóíða sem finnast í kannabisplöntunni
til að ráða bót á astma, bólgum, gláku,
klígju af völdum krabbameinslyfja, flogaveiki og sem áhrifaríkt
sýklalyf. Einnig þótti sannað að kannabis kæmi
að gagni í meðhöndlun lystarstols, Parkinsonveiki,
heila- og mænusiggs (MS) og vöðvarýrnunar. Þá
var og athyglivert, að kannabis var í sumum tilvikum sjúklingum
til framdráttar, þar sem önnur lyf höfðu brugðist.
"Árið 1976 spáði
dr. Mechoulam því að innan við áratug yrði
maríúana komið í hóp algengustu lyfja.
Hann taldi víst að það mundi leysa af hólmi
tíu til tuttugu prósent þeirra lyfja sem læknar
ávísuðu."
Vísindamenn voru bjartsýnir
á framtíð kannabislyfja. Árið 1976 spáði
dr. Mechoulam því að innan við áratug yrði
maríúana komið í hóp algengustu lyfja.
Hann taldi víst að það mundi leysa af hólmi
tíu til tuttugu prósent þeirra lyfja sem læknar
ávísuðu. Kannabis er ódýrt í framleiðslu
og mundi þess vegna lækka kostnað heilbrigðiskerfisins
svo um munar. Það dugir vel gegn streitu, sem er höfuðorsök
margra sjúkdóma, og stæði hvað það
varðar betur að vígi en valíum, líbríum
og önnur róandi lyf. Öfugt við bensódíasepínsambönd
veldur kannabis ekki banvænum eitrunum hjá mönnum. Fráhvarfseinkenni
af langtímanotkun eru engan veginn jafnalvarleg og hætta á
misnotkun almennt minni. Dr. Lester Grinspoon er sömu skoðunar:
,,Ég er sannfærður um að kannibídíól
[eitt af sextíu efnasamböndum kannabis sem hefur lækningamátt]
yrði öndvegis svefnlyf og sem kvíðastillandi lyf fremst
í sinni röð. Kannibídíól veldur ekki
vímu og ólíkt þeim lyfjum sem nú eru
notuð eru eiturverkanir litlar sem engar. Þess vegna getur kannabis
átt stóran þátt í að leysa eitt alvarlegasta
lyfjavandamál Vesturlanda, nefnilega dauðsföll og neyðartilvik
á sjúkrahúsum vegna misnotkunar róandi lyfja."
Maríúana
löglegt glákulyf
Bandaríkjamaðurinn
Robert Randall var einn margra glákusjúklinga sem uppgötvuðu
að maríúanareykingar afstýrðu blindu með
því að lækka augnþrýsting. Þegar
götuverð á maríúana hækkaði upp
úr öllu valdi hóf hann að rækta kannabisplöntur
heima hjá sér. Lögreglan komst á snoðir um
glæpinn og gerði plönturnar upptækar. Randall var
ákærður fyrir fíkniefnamisferli en bar því
við að óheftur aðgangur að maríúana
væri honum læknisfræðileg nauðsyn. Hann fór
ekki aðeins fram á að vera sýknaður heldur gerði
kröfu um að honum yrði tafarlaust látið í
té ríkisræktað maríúana. Til að
renna stoðum undir tilkall sitt undirgengst Randall ítarlega
læknisskoðun sem staðfesti að hvorki hefðbundin glákulyf
né skurðaðgerð yrði honum að gagni. Ljóst
var að án maríúana myndi hann alfarið missa
sjónina. Í nóvember 1976 úrskurðaði
hæstiréttur Bandaríkjanna að neysla á maríúana
væri ekki lögbrot í hans tilviki heldur ,,læknisfræðilegt
neyðarúrræði". Robert Randall var fyrsti sjúklingurinn
af níu sem fá mánaðarlega tinöskju með
300 maríúanavindlingum frá bandaríska ríkinu.
Innihald þeirra er ræktað á sérstakri kannabisekru
alríkisstjórnarinnar við Mississippi-háskólann.
 |
Elvy Musikka er ein af
átta sjúklingum sem fá mánaðarlega 300 maríúanavindlinga
frá bandaríska ríkinu. |
,,Árið 1972 sagði
einn fremsti augnlæknir landsins mér að ég væri
með ólæknandi gláku og yrði blindur innan við
þrjú, í mesta lagi fimm ár. Síðan
eru liðinn meir en tuttugu ár og sjónin hefur sjaldan
verið betri,"
sagði Randall sem þá var orðinn formaður landssambands
um kannabislækningar.
,,Það er maríúana að
þakka að ég er ekki blindur í dag. Frá því
að ég reykti fyrsta maríúanavindlinginn með
velþóknun yfirvalda hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Í dag hafa þrjátíu og fimm fylki Bandaríkjanna
leyft neyslu maríúana til lækninga og nýleg
skoðanakönnun sýndi að 80% þjóðarinnar
telur eðlilegt að kannabis fáist út á lyfseðla.
Samt sem áður sitja embættismenn alríkisstjórnarinnar
við sinn keip og neita sjúklingum um lyfin sín. Fyrir
stuttu var félagi okkar blindur eftir augnauppskurð sem hann
þurfti nauðbeygður að gangast undir eftir að hafa
í sífellu verið neitað um lögmætan aðgang
að maríúana. Nú er ekki svo að viðurkennd
glákulyf séu án alvarlegra aukaverkana. Öðru
fremur, langtímanotkun glákulyfja hefur oft heiftarleg eiturhrif
í för með sér. Viðurkennt er að þau
orsaka vagl, nýrnasteinamyndun, magasár, húðútbrot,
sótthita, óráð, höstugar geðsveiflur,
háþrýsting, öndunartruflanir, nýrna- og
hjartabilun, stundum dauða. Yfirvöld horfa hins vegar framhjá
þessum hættum vegna þess að lyfin koma í flestum
tilvikum að liði. Maríúana er aftur á móti
litið hornauga einfaldlega vegna þess að það skapar
vímu. Er ekki eitthvað að kerfi sem umber lyf sem veldur
fólki vanlíðan en getur ekki gert slíkt hið
sama ef það veldur því vellíðan?"
Hagsmunagæsla lyfjaiðnaðarins
Úrskurður hæstaréttar
í máli Roberts Randalls vakti þær spurningar
hvort kannabis yrði lögleitt innan tíðar. Embættismönum
til hrellingar höfðu rannsóknir er flíka áttu
skaðsemi kannabisefna sýnt öndverða niðurstöðu
og dregið taum þeirra sem vildu róttækar breytingar
á fíkniefnalögunum. Árið 1977 kröfðust
til dæmis bandarísku læknasamtökin að læknar
fengu öðru sinni að ávísa kannabis út
á lyfseðla. Lyfjaframleiðendur buðust nú til
að rannsaka mólgerðir hampplöntunnar, stjórnvöldum
að kostnaðarlausu, í þeim tilgangi að hanna efnafræðilega
unnið THC sem hefði græðandi eiginleika án þess
að vera vímuvaldur. Stjórnvöld sáu sér
leik á borði og veittu lyfjafyrirtækjum einkaleyfi á
vísindalegum rannsóknum á heilnæmi tetrahýdrókannabínóls.
Heimildin náði þó eingöngu til tetrahýdrókannabínóls
en ekki annarra kannabíóíða. Þessi fyrirvari
átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar í
för með sér. Með þessu móti var háskólum
og hinu opinbera í raun fyrirmunað að stunda frekari rannsóknir
á lækningagildi kannabisefna.
"Í dag hafa þrjátíu og fimm fylki Bandaríkjanna
leyft neyslu maríúana til lækninga og nýleg
skoðanakönnun sýndi að 80% þjóðarinnar
telur eðlilegt að kannabis fáist út á lyfseðla."
Margir urðu til að
gagnrýna þessa ráðstöfun og töldu víst
að henni væri fyrst og fremst ætlað að fela upplýsingar
og gögn sem stjórnvöldum hugnaðist ekki. Tímaritið
Omni sagði af þessu tilefni:
,,Núna þegar
hundruð vísindalegra athugana á vegum hins opinbera
hafa loks staðfest, svo ekki er um að villast, að óunnið
maríúana í sinni náttúrlegri mynd, sé
heppilegasti kosturinn fyrir marga sjúklinga, er lyfjafyrirtækjum
falið að þróa synthetískt kannabismólikúl
á tilraunastofum. Þessi áform taka ekki mið af
hagsmunum almennings heldur er þeim ætlað að skapa
lyfjaframleiðendum óvæntan gróða í formi
einkaleyfa. Hagsmunir lyfjafyrirtækjanna eru gífurlegir því
vitað er að þau mundu tapa hundruðum milljóna
dollara, jafnvel milljarða dollara árlega, einkum í þriðja
heiminum, ef maríúana, eins og það vex út
í guðsgrænni náttúrunni, yrði löglegt
til neyslu."
Það dró
heldur ekki úr tortryggni almennings þegar fréttist
að ríkisstjórn Ronalds Reagans hefði farið þess
á leit við háskóla og rannsóknarstofur
að skýrslur og skjöl sem lutu að kannabisrannsóknum
árin 1966-76, ásamt öðrum heimildum og ágripum
sem kynnu að finnast á bókasöfnum um þær,
yrði tortímt. Fræðimönnum blöskruðu
ritskoðunartilburðir yfirvalda og höfnuðu erindinu. Nokkrar
rannsóknarúrlausnir í vörslu alríkisstjórnarinnar
hurfu þó með undarlegum hætti á meðan
aðrar voru í sömu svipan flokkaðar sem trúnaðarmál.
Hasstöflur lyfjaframleiðenda
 |
Skrýtin mótsögn. Hampjurt í sinni náttúrlegri mynd flokkast sem fíkniefni og er bannfærð á meðan efnafræðilega unnið THC, vímuvaldur jurtarinnar, er viðurkennt sem lyf. Meira segja á Íslandi. Að minnsta kosti á meðan heildsalar og lyfjaframleiðendur njóta ágóðans. |
Árið 1985 var
dronabinol (Nabilone® og Marinol®), samtengt eða tilbúið
tetrahýdrókannabínól í hylkjum, fáanlegt
út á lyfseðla. Hlutverk þess var að koma í
stað maríúana þar sem þörfin var mest,
einkum meðal krabbameinssjúklinga og þeirra sem þjáðust
af eyðni. Lyfjameðferðin sem sett er til höfuðs þessum
banvænu sjúkdómum hefur gríðarlegar hjáverkanir
í för með sér og jafnvel þjáningar
í svo miklu mæli að sjúklingurinn veit stundum
ekki hvort veldur honum meiri kvöl meinsemdin eða meðferðin.
Algengasta og hjá sumum sjúklingum alvarlegasta hliðarverkunin
er viðvarandi klígja og óstjórnleg þörf
til að kasta upp. Ósjaldan verða þessi eftirköst
til að sjúklingar gefa upp alla von og binda enda á meðferðina
enda þótt það leiði óhjákvæmilega
til dauða. Lyf sem nota má til að hefta klígju og
uppsölu hafa verð þróuð en dæmi eru um
að þau virki ekki eða hætti að virka eftir ákveðin
tíma. Í einni rannsókn á fimmtíu og
sjö sjúklingum þar sem notkun viðurkenndra lyfja
gegn velgju og spýju kom ekki að gagni reyndust maríúanareykingar
í 87% tilvika leysa vandann. Tilkoma dronabinol vakti því
miklar vonir.
Því miður
stóðu hasstöflurnar ekki undir væntingunum sem til
þeirra voru gerðar. Loforð lyfjaframleiðenda um að
aðskilja vímuáhrifin frá verkunum tetrahýdrókannabínóls
voru ekki efnd. Þvert á móti þá kvörtuðu
notendur marinols yfir því að þeir þyrftu
að upplifa þrefalt til fjórfalt meiri vímu en ella
til að fá sama ávinning og þegar gott gras átti
í hlut. Víman af munnlegri inntöku THC er einnig mörgum
hvimleið því hún framkallar kvíða og
önnur óþægindi. Vísindamenn frá Perú
hafa leitt líkur að því að ástæðan
sé sú að aðrir kannabínóíðar,
einkum kannabídíól sem hefur róandi áhrif,
mildi áorkan tetrahýdrókannabínóls.
Annar augljós annmarki á hasspillunum er sú staðreynd
að sjúklingar sem þjást af uppköstum eiga
erfitt með að halda þeim niðri. Rannsóknir sýna
að aðeins 13% þeirra sem nota tilbúið delta-9
THC í töfluformi eru sáttir við notkun þess.
Meirihluti sjúklinga kýs að reykja maríúana
enda auðveldar það þeim að stjórna því
hversu mikið magn af tetrahýdrókannabínóli
berst með blóðinu til heilans. Bandarísk könnun
á viðhorfum 1.035 ónæmisfræðinga leiddi
í ljós að 44% þeirra höfðu ráðlagt
sjúklingum sínum að reykja maríúana til
að spyrna gegn aukaverkunum lyfja sem þeir taka. Allur þorri
aðspurðra töldu maríúana betra lyf við ógleði
og uppköstum en samtengt THC og rúmlega helmingur hópsins
kvaðst mundi mæla með því til lækninga
ef það væri löglegt.
"Árið 1985 var
dronabinol (Nabilone® og Marinol®), samtengt eða tilbúið
THC í hylkjum, fáanlegt
út á lyfseðla. Hlutverk þess var að koma í
stað maríúana þar sem þörfin var mest,
einkum meðal sjúklinga með krabba og þeirra sem þjást
af eyðni."
Fíkniefnadómari
mælir með lyfhrifum maríúana
Samkvæmt fíkniefnalöggjöf
Bandaríkjanna er hugbreytilyfjum skipað í fimm meginflokka.
Maríúana, hass, hassolía og önnur náttúrleg
afbrigði tetrahýdrókannabínóls er raðað
í flokk I, þar sem hömlur á notkun eru mestar.
Samkvæmt skilgreiningunni hefur þessi flokkur lyfja í
sér fólgna ,,mikla möguleika á misnotkun", ,,ekkert
viðtekið læknisfræðilegt gildi" og ,,skort á
viðunandi öryggi" til notkunar jafnvel undir eftirliti lækna.
Árið 1972, tveimur árum eftir að þessari flokkun
var komið á, fóru Samtök um endurskoðun á
lögum um fíkniefni (NORML), Ameríska kannabislyfjafyrirtækið
o.fl. fram á það við yfirstjórn fíkniefnalögreglunnar,
D.E.A. (Drug Enforcement Administration), að kannabis, líkt
og efnasmíðað THC og morfín, yrði skipað
í lyfjaflokk II, þannig að læknar gætu ávísað
því til sjúklinga.
Í hugum margra var
þessi beiðni eðlileg. Eigi að síður var hún
ekki tekin til formlegrar afgreiðslu fyrr en eftir málþóf
og lögfræðilegt þvarg sem entist í dómskerfinu
í nær fimmtán ár. Vitnaleiðslur og heimildasöfnun
vegna beiðninnar, árin 1986-88, er ýtarlegasta könnun
sem gerð hefur verið á græðandi eiginleikum kannabisefna
á okkar tímum. Allmargir sjúklingar og læknar
báru vitni og þúsundir síðna af skjölum
voru lögð fram. Stjórnsýsludómari fíkniefnalögreglunnar
og kunnur íhaldsmaður, Francis L. Young, var valinn til að
dæma í málinu. Eftir vandlega yfirvegun kynnti hann
úrskurð sinn þess efnis að enginn rök mæltu
gegn því að læknar fengu að ávísa
kannabisefnum út á lyfseðla.
Kannabis víða
notað ólöglega á sjúkrahúsum
 |
Lyfjamixtúra sem framleidd var í Bandaríkjunum og innihélt kannabisþykkni.
Athyglisvert er að á þeim áttatíu árum
sem kannabis var notað til lækninga á Vesturlöndum
var notkun þess sem nautnalyfs nær óþekkt fyrirbæri. |
Í dómsniðurstöðu
sinni sagði Young meðal annars:
,,Sannanir sem finna má
í skjölum málsins sýna ljóslega að
viðurkennt er að maríúana linar þjáningar
fjölmarga einstaklinga sem þjást af illkynja sjúkdómum,
og hefur gert það með óyggjandi hætti undir
handleiðslu lækna… Það væri ósanngjarnt,
gerræðislegt og dyntótt af D.E.A. að halda áfram
að standa í vegi fyrir því að þeir sem
þjást njóti góðs af þessu efni í
ljósi staðreynda málsins."
Til að sýna fram
á að maríúana hefði lækningagildi ,,án
nokkurs vafa" vísaði Young á ógrynni sérfræðinga
úr læknastétt og fjöldin allan af læknisfræðilegum
rannsóknum á vegum Harvard-háskóla, New York-háskóla
og annarra leiðandi læknaskóla. Sjúklingar og læknar
vitnuðu um að maríúana aftraði ógleði
og uppsölu af völdum krabbameinslyfja og geislameðferðar.
Sökum þess hversu ,,geysilega vel heppnaður lystauki" það
væri kæmi það fjölmörgum alnæmissjúklingum
að miklu gagni, enda víða notað ólöglega
á sjúkrahúsum. ,,Þessi farsæla beiting
maríúana hefur gefið mörgum krabbameinssjúklingum
mun jákvæðara viðhorf til eigin læknismeðferðar
almennt," segir í dómsniðurstöðunni.
Dómarinn fullyrti
að gögn sýndu að maríúanareykingar væru
talsvert áhrifaríkari meðal heldur en samtengt THC í
töflum. Hann taldi sannað að maríúana kæmi
að góðum notum við að hafa hemil á krampakippum
sjúklinga með heila- og mænusigg, við krampalömun
og við ofstarfsemi kalkkirtla, sem veldur sársaukafullum efnaskiptatruflunum
og kalktapi beina. Honum þótti þó ekki ástæða
til að leyfa notkun maríúana við gláku almennt
þar sem ekki væri fullsannað að það kæmi
öllum gláku- sjúklingum til góða. Þótt
maríúana gæti vissulega ,,verið skaðlegt" og
,,misnotað" í sumum tilvikum ,,vega hætturnar af notkun
þess ekki þyngra en gagnsemin". Young tók fram að
í sögu mannkyns væri dauðsföll af völdum
kannabisefna með öllu óþekkt.
,,Flestöll lyf
sem læknar nota hafa kunn eituráhrif og geta leitt til dauða,
sama verður ekki sagt um maríúana ... Strangt til tekið,
í ljósi læknisfræðilegra staðreynda,
er maríúana mun öruggara til neyslu en margar fæðutegundir
sem við innbyrðum dags daglega ... Maríúana í
sinni náttúrlegri mynd er einn áreiðanlegasti
læknisdómur sem maðurinn þekkir."
"Sambærilegir klúbbar
hafa verið settir á laggirnar í Bretlandseyjum og öðrum
löndum Vestur-Evrópu. Hlutverk þeirra er að tryggja
fólki með illkynja sjúkdóma aðgang að
maríúana."
Kaupendaklúbbar
kannabisefna
Þrátt fyrir
skýlausan úrskurð eigin stjórnsýsludómara
neitaði yfirstjórn D.E.A. að færa kannabis í
lyfjaflokk II þannig að hægt yrði að tiltaka það
sem lyf.
,,Við teljum að slíkt skref mundi gefa ungu fólki
villandi skilaboð þegar viðureignin gegn fíkniefnum
er annars vegar. Aukreitis eru að okkar mati ekki nægilegar læknisfræðilegar
forsendur fyrir því að leyfa maríúana til
lækninga… Núna þegar fylgjendur maríúana
sem vímugjafa hafa yfirhöndina í áróðursstríðinu
er mikilvægt að standa fastur fyrir gegn öllum tilraunum
til að veita því hálfgildings lögleiðingu."
Dr. Tod Mikuriya, sem rannsakað hefur notkun alnæmissjúklinga
á maríúana, sagði af þessu tilefni:
,,Þegar
upp er staðið ætti meðhöndlun fólks með
banvæna sjúkdóma ekki að hafa neitt með pólitík
eða hugmyndafræðilegan ágreining að gera. Faraldurinn
snýst um fólk. Um ástvini sem deyja snemmendis hræðilegum
dauðdaga. Ef maríúana getur dregið úr sársauka
þeirra eru engar ástæður, hvorki stríð
gegn fíkniefnum né fjárfestingar lyfjafyrirtækja,
sem réttlæta að fólk geti ekki nálgast lyfið
sitt með lögmætum hætti."
Þegar ljóst
var að yfirvöld mundu ekki láta af tregðu sinni við
að útvega maríúana stofnuðu sjúklingar
og aðstandendur þeirra svonefnda ,,kaupendaklúbba" í
stærstu borgum Bandaríkjanna. Sambærilegir klúbbar
hafa verið settir á laggirnar í Bretlandseyjum og öðrum
löndum Vestur-Evrópu. Hlutverk þeirra er að tryggja
fólki með illkynja sjúkdóma aðgang að
gæðaefni á vægu verði. Dennis Peron, sem leiðir
stærsta kaupendaklúbbinn í San Francisco, segir um
starfsemi hassklúbbanna:
,,Hér er um dæmigerðan
heimilisiðnað að ræða. Við fáum þurrkaða
blómsprota kannabisplantna á vægu verði frá
ræktendum, jafnvel gefins, og veitum þeim til einstaklinga
sem eru sannanlega með krabbamein, heila- og mænusigg eða
alnæmi. Margir koma til okkar vegna ábendinga lækna
og annars hjúkrunarfólks sem vilja tryggja sjúklingum
sínum bestu meðhöndlun sem kostur er á. Þeir
sem hafa lítil auraráð fá efnið ókeypis
á meðan þeir sem betur eru staddir borga hærra verð.
Eftir- spurnin er mikil og þess vegna getum við aðeins sinnt
þeim sem eru með alvarlegustu sjúkdómana. Starfsemin
var upphaflega ólögleg en borgaryfirvöld og löggæslumenn
leyfðu okkur að starfa í friði því þeim
var ljóst hversu þörfin var mikil. Núna þegar
fylkislögunum hefur verið breytt og kaupendaklúbburinn
er orðinn löglegur eigum við hins vegar í vanda því
alríkisstjórnin sættir sig ekki við tilvist okkar."
 |
Hampfræ er altækasta og prótínríkasta fæða sem fyrirfinnst í jurtaríkinu og nefnd ,,eggjahvítuefni fátæka mannsins" sökum þess hversu vinsæl þau eru til matar í ríkjum þriðja heimsins. Hampfræ eru mulin og úr þeim eru bakað brauð, kökur og pottréttir. Hægt er að krydda pottrétti hampfræjanna þannig að þeir bragðast eins og kjúklingar, nautasteik og svínakjöt. Úr fræjunum er unnin mjólk, smjör og ís með ýmsum bragðtegundum. Í fjölmörgum löndum heims, þar sem maríúana vex villt í náttúrunni, hefur fólk komist upp á lag með að pressa fræin til að vinna úr þeim matarolíu er dugar vel til steikingar og er einnig notuð sem sósa út á salat.
|
Kannabislyf á Íslandi
Samkvæmt heimildum
frá Lyfjaeftirliti ríkisins hefur Nabilone®, efnasmíðað
THC, verið ávísað hér á landi í
nokkrum tilvikum í samræmi við reglur um notkun óskráðra
lyfja. Það hefur einkum verið gefið til að draga
úr klígju vegna lyfjameðferðar krabbameinssjúklinga.
Aðspurður um notkun kannabis til lækninga hér á
landi svaraði reykvískur læknir sem vill ekki láta
nafns síns getið:
,,Mér er kunnugt um að einstaka
sjúklingar hafi verið að fikta við að reykja hass
sér til heilsubótar. Sjálfur hefði ég kosið
að þeir notuðu viðurkennd lyf til að stemma stigu
við hjáverkunum lyfja sem þeir taka, en ef hassreykingar
gera meira gagn, eins og þeir virðast telja sér trú
um, þá set ég mig ekki á móti þeim.
Þeir sem mæla með hassreykingum til lækninga ættu
þó að hafa í huga að kannabisreykur hefur meira
af krabbameinsvaldandi tjöruefnum en tóbaksreykur. Hassreykingar
hljóta því að hafa skaðleg áhrif á
lungu þegar til lengri tíma er litið."
Mígreni og kannabisreykingar
,,Ég kynntist fyrst
maríúanareykingum í Amsterdam," segir 46 ára
hafnfirsk listakona og mígrenisjúklingur. ,,Það
breytti lífi mínu stórlega. Í fyrsta sinn í
fjórtán ár var ég ekki lengur undir náð
og miskunn mígrenikasta sem gerðu líf mitt að kvalræði
með reglulegu millibili. Vinkona mín sem var þá
við læknanám benti mér á að það
væri víða notað til að kæfa mígreniköst
í fæðingu. Þegar ég kom heim útvegaði
ég mér hass og núna fer ég aldrei út
úr húsi án þess að hafa litla pípu
og hassmola í handtöskunni minni. Þegar ég finn
til svima eða syfju, sem er yfirleitt undanfari mígreni- kastanna,
blanda ég lítilræði í pípu og reyki
tvo til þrjá smóka. Það dugar yfirleitt til
að halda köstunum í skefjum.
"Samkvæmt heimildum
frá Lyfjaeftirliti ríkisins hefur Nabilone®, efnasmíðað
THC, verið ávísað hér á landi í
nokkrum tilvikum í samræmi við reglur um notkun óskráðra
lyfja."
Áður fyrr þurfti
ég að nota sterk deyfilyf og önnur lyf sem komu ekki nema
að takmörkuðu gagni, höfuðverkurinn hvarf en ekki
ógleðin og sjóntruflanirnar voru þær sömu.
Ég var óvinnufær og ekki mönnum sinnandi undir
áhrifum þessara lyfja. Eftirköstin af lyfjunum voru óbærileg;
brjóstsviði, harðlífi, útbrot, sljóleiki,
eftir því hvaða lyfjum ég var á hverju sinni.
Hassið var eins og himna- sending, það losaði mig við
öll þessi einkenni. Það versta í því
sambandi er hins vegar feluleikurinn og óttinn um að vera staðinn
að verki. Ég er ekki dópisti, þegar ég geri
mér dagamun, kýs ég frekar kælt rauðvín
eða glas af líkjör. Hass fyrir mér hefur aldrei
verið annað en nauðsynlegt lyf."
Krabbameinssjúklingur
segir frá
,,Þegar ég kynntist
fyrst hassreykingum sem meðal við velgju var ég við
það að gefa upp alla von," segir 29 ára reykvískur
tæknifræðingur sem þjáist af krabbameini.
,,Ég var vart orðinn annað en skinn og bein. Bara tilhugsunin
um að nú þyrfti ég að fara að mæta
í lyfjagjöf upp á spítala var nóg til
þess að ég kúgaðist. Ég hafði enga
matarlyst, þoldi ekki einu sinni að finna lykt af mat án
þess að kasta upp. Þegar ég kom heim frá
spítalanum gætti ég þess vandlega að troða
handklæðum milli stafs og hurðar á herberginu mínu
til að finna ekki lyktina úr eldhúsinu. Ég ældi
stundum samfellt í sjö til níu tíma. Þangað
til ekkert kom upp úr mér annað en gall og blóð.
Þegar því lauk tók við flökurleiki sem
entist dögum saman. Lyfin sem ég fékk við þessu
höfðu enginn áhrif. Ég svaf varla nema tvo til þrjá
tíma á sólarhring og var orðinn svo niðurdreginn
að ég vildi helst ljúka þessu af og deyja.
Hjúkrunarfræðingur
sem sá að ég var að veslast upp vegna lyfjanna trúði
mér fyrir því að kannabis kæmi stundum að
gagni í svipuðum tilfellum. Eins og komið var fyrir mér
var ég tilbúinn að reyna hvað sem er. Breytingarnar
sem urðu eftir að ég byrjaði að reykja voru ótrúlegar.
Ógleðin hvarf eins og dögg fyrir sólu, ég
fór að borða reglulega, enda matarlystin með ólíkindum.
Ég fitnaði um tæp tuttugu kíló á
aðeins einum mánuði. Ég svaf eðlilega, fyrsta
sinn í mörg ár, og fór að geta farið
út á meðal fólks á nýjan leik. Fyrstu
mánuðina reykti ég hass, en núna reyki ég
eingöngu maríúana sem ég rækta sjálfur.
Ég kann betur við grasið vegna þess að áhrifin
eru mildari, hassvíman er of krefjandi fyrir minn smekk.
"Ég vona
að þessi grein sem þú ert að skrifa opni augu
fólks. Veki umræðu. En eins og málum er háttað
þá efast ég um að hún verði einu sinni
birt."
 Íslenskur krabbameinssjúklingur
Ef allt væri með
felldu fengi ég maríúana frá lækninum
mínum eins og önnur lyf sem ég þarf á að
halda. Hann getur gefið mér morfín ef hann telur mig
þurfa þess með, hvers vegna ekki maríúana?
Fyrir mér er það spurning um líf og dauða.
Maríúana gerði mér kleift að endurheimta sjálfsvirðinguna.
Mér finnst ég vera orðinn mennskur á ný.
Samt sem áður verð ég að pukrast með það
inná klósetti eins og glæpamaður. Ég vona
að þessi grein sem þú ert að skrifa opni augu
fólks. Vekji umræðu. En eins og málum er háttað
þá efast ég um að hún verði einu sinni
birt."
|