demo image
| Forsíða  | Álit annarra  | Um höfundinn  | Tölvupóstur  | Tenglasafnið | Gestabókin | Spjall |
Barnauppeldi
Vísindi
Dulspeki
Frímúrarareglan
Krishnamurti
Adolf Hitler
Fyrri líf
Svartar messur
Nasisminn
Tantra
Nornafræði
Fíkniefnamál
Mannfræði
Nýöld
Viðtöl
Þjóðmál
Aðsent efni
Dulspeki nasismans

Það hefur löngum verið mönnum hulin ráðgáta hvernig fátækur, óskólagenginn og ættlaus maður á borð við Adolf Hitler gat orðið einvaldur þýsku þjóðarinnar. Saga hans er kraftaverki líkust. Þegar hann gekk inn í ,,Þýska verkamannaflokkinn" var hann ekki annað en aumkunarverður kjaftaklúbbur með innan við tíu meðlimi. Á nokkrum mánuðum tókst Adolfi með feiknalegri atorkusemi og óbilandi vilja að breyta þessum ómerkilega klúbbi í fjöldahreyfingu sem stefndi hraðbyri til æðstu valda. Þegar Hitler tók síðan við stjórnartaumunum tókst honum að leysa gífurleg samfélagsleg vandamál á nokkrum árum. Full atvinna, hagsæld og vaxandi þjóðleg reisn var ávöxtur fyrstu stjórnarára hans.

Þjóðfélagsfræðingar telja að skýringar á uppgangi Nasistaflokksins sé fyrst og fremst að finna í þjóðfélagslegum kringumstæðum þess tíma. Það verður hins vegar ekki borið á móti því að persónuleiki Adolfs Hitler hafði mikið að segja og réð jafnvel úrslitum í viðgengni og þegar frá leið í ósigri þjóðernisjafnaðarstefnunnar. Hér verður fjallað um fyrirferðarmikinn þátt í persónuleika Hitlers, sem sjaldan er vikið að. Nefnilega fádæma áhuga hans á göldrum og dulfræði ýmiss konar.

Kynferðisleg sefjun var mikilvægur þáttur í áróðursstríði nasista. Hitler setti á svið sjónarspil með fínlega dulbúnum kynferðislegum ruddaskap, sem höfðaði til sadó-masókiskra ímyndana hinnar bitru og bældu miðstéttar. Þýskir hugsuðir, eins og Wilhelm Reich og Ernest Bloch, vöruðu við því að vinstri hreyfingin höfðaði ekki til tilfinningalegra þarfa æskunnar og að nasistar hefðu klófest hið andlega og dulræna svið og að þessi staðreynd myndi ráða úrslitum. Menn höfðu aðvaranir þeirra að engu. Hugmyndafræðingar Kommúnistaflokksins svöruðu jafnvel hróðugir að ,,kynferðisleg ófullnægja þekktist aðeins hjá borgarastéttinni" og þess vegna litlar líkur á því að áróðurstækni af þessu tagi skilaði árangri meðal verkalýðsins!

Rúnir og norrænn goðafræði

Sagnfræðingurinn Alan Bullock rannsakaði útlán Adolfs Hitler á bókasöfnum og komst að þeirri niðurstöðu að lesefnið sem var honum hjartfólgnast fjallaði um austræn trúarbrögð, jóga, galdra, dáleiðslu, stjörnufræði, rúnir og norræna goðafræði. Í minningum æskuvinar Hitlers, August Kubisek, kemur fram að Hitler hafi verið gagntekinn af hinum fornu hetjusögum um Niflunga og hina norrænu æsi. Hann sökkti sér niður í efni þeirra og smám saman urðu þær honum grundvöllur lífsviðhorfa, og fólu í sér þann sögulega og stjórnmálalega skilning, sem heillaði hann mest. Edda Snorra Sturlusonar var honum heilög bók. Ísland var, sökum varðveislu forngermanskra bókmennta, meðal göfugustu landa veraldar.

Þá er Hitler gegndi herþjónustu í fyrri heimsstyrjöldinni samdi hann ljóð sem segir frá því hvernig hann gangi út að næturlagi og ,,risti rúnir á ývið Óðins og spinni örlagavef með myrkum öflum". Hið kynngimagnaða merki Nasistaflokksins, hakakrossinn eða sólarhjólið, var valið sem merki hins nýja Þýskalands. Gunnfánar, skrautskildir, armbönd og jafnvel skriðdrekar voru merktir fornum rúnum. Stormsveitirnar höfðu tvær sól-rúnir sem auðkenni, en sól-rúnin stendur fyrir þrumufleyginn, sem var ginnhelgasta tákn Þórsdýrkenda. Ástæðan fyrir því að Adolf Hitler valdi þessi germönsku tákn var ekki einvörðungu vegna uppruna þeirra, heldur einnig vegna þess að hann trúði á töframátt rúnanna.

Mjölnir og hið aríska samfélag

Hitler var undir miklum áhrifum frá rúnafræðingunum Guido von List og Jörg Lans von Liebenfels. Báðir þessir menn stofnuðu leynireglur þar sem áhersla var lögð á norræn fræði, þýska fornsögu og ásatrú. Á heiðnum helgidögum fóru reglufélagar á afvikna staði úti í náttúrunni, kveiktu elda, lásu úr Eddukvæðum og ristu rúnir að fornum sið. Sumir höfundar hafa haldið því fram að þeir hafi haldið árstíðabundin blót þar sem gyðingum var fórnað, en enginn fótur er fyrir slíkum kviksögum. Andúð á gyðingum var hins vegar stór þáttur í hugmyndafræði þessara hópa og mikið lagt upp úr að viðhalda hreinleika aríska kynstofnsins. Ýmsir siðir og félagstákn, sem síðar einkenndu nasistaflokkinn, voru hafðir í frammi. Meðal þeirra má nefna kveðjuorðið ,,Heil" og hinn framrétta arm, auk hakakrossins, sem álitinn var Þórstákn og átti að vísa til hamarsins Mjölnis.

"Edda Snorra Sturlusonar var honum heilög bók. Ísland var, sökum varðveislu forngermanskra bókmennta, meðal göfugustu landa veraldar."

Svo virðist sem List hafi getað séð inn í ókomna tímann því á dánarári sínu, 1919, skrifar hann vini sínum bréf og spáir því að árið 1932 verði komið á fót í Þýskalandi hreinu arísku samfélagi. Þessi nýja samfélagsskipan muni afnema lýðræðið og kippa fótunum undan efnahagslegu og stjórnmálalegu valdi gyðinga. Liebenfels er einnig bjartsýnn á framtíðina því í sendibréfi til reglubróður síns segir hann:

,,Hitler er einn af nemendum okkar. Einn daginn verður þú vitni að því, að við munum í gegnum hann bera sigur úr býtum og byggja upp hreyfingu, sem fær allan heiminn til þess að skjálfa."

Ræðusnilld og miðilsgáfa Hitlers

Adolf Hitler fæddist þann 20. apríl árið 1889 í Braunau, á landamærum Austurríkis og Bæjaralands. Þessi landamærabær hafði orð á sér fyrir að vagga frægustu miðla Þýskalands. Þýska sálarrannsóknarfélagið sótti miðla sína til fæðingarbæjar Hitlers og er talið að einn þeirra hafi meira að segja verið frændi Hitlers. Margt hefur verið rætt og ritað um ræðumennsku Hitlers og þykir stundum með fádæmum hvílíku áhrifavaldi hann gat náð yfir áheyrendum sínum. Margir telja að sefjunar- eða dáleiðslumáttur hans hafi átt rætur að rekja til miðilsgáfu, sem Hitler átti að búa yfir í ríkum mæli. Miðilshæfileikinn gerði honum kleift að túlka leyndustu tilfinningar og kenndir áheyrenda sinna og segja það helst sem þeir vildu heyra. Þegar æsingaræður Hitlers voru í hámarki hafði hann stundum náð slíku tangarhaldi á mannsöfnuðinum að hann fylgdi hreyfingum Hitlers eftir í hvívetna. Í hvert sinn sem Hitler sveigðist í tiltekna átt sveigðust fundarmenn með honum og þegar hann hallaði sér fram hölluðu fundarmenn sér einnig fram. Við lok ræðunnar sátu þeir síðan ýmist hljóðir í óttablandinni lotningu eða stóðu öskrandi í æðisgengnum fagnaðarlátum. Fyrir kom að fundargestir gátu ekki afborið ástríðuhitann og féllu hreinlega í ómegin.

Hitler talar sig og áheyrendur sína í ham

Ræðusnilld Adolfs Hitler á sér enga samsvörun í sögu stjórnmálanna. Með blæbrigðaríkum hljómi og hrynjandi raddarinnar og listrænu samspili handa og líkamshreyfingar tókst honum að spila á viðkvæma strengi tilfinninganna og túlka dýpstu og leyndustu þrár fjöldans. Hermann Rauschning sagði um áhrifamátt Adolfs Hitler: ,,Það er trumba seiðmannsins sem glymur í kringum Hitler. Andadýrkun, töfrar og tryllingsdansar Asíu- og Afríkuþjóða eru þeir þættir sem eru uppistaðan í dulmætti hans. Hin frumstæða villimennska hefur vaðið inn í heim vestrænnar menningar."

Hermann Rauschning, höfundur bókarinnar Hitler talar var í aðstöðu til að fylgjast náið með Foringjanum. Hann var sannfærður um að Hitler væri haldinn öflum utan hans sjálfs, djöfullegum öflum, er gæddu hann yfirnáttúrulegum krafti. Rauschning sagði meðal annars:

,,Maður kemst ekki hjá því að hugsa um Hitler sem miðil. Hæflleikar miðilsins koma persónuleika hans sjálfs ekkert við. Þeir berast honum utan að. Þeir ná valdi á miðlinum. Á sama hátt virðist ótvírætt að dularfull öfl nái tökum á Hitler, einhverjir óhugnanlegir kynngikraftar, sem gera menn að verkfæri í hendi hans."

Kenningar þess efnis að Adolf Hitler hafi starfað í nánum tengslum við einhverja ósýnilega meistara hafa skotið upp kollinum öðru hvoru. Sagnfræðingar hafa átt erfitt með að kyngja þeirri staðreynd að sá maður sem hefur haft hve mest áhrif á gang mannkynssögurnar á síðustu öld skuli hafi duflað í göldrum og öðrum hjáfræðum liðinna alda. Þeir sem rannsaka ævi Hitlers hleypidómalaust komast hins vegar ekki hjá því að viðurkenna að töfrar og dulræn reynsla gegndu mikilvægu hlutverki í hugarheimi Hitlers.

Samstarf nasista og tíbetskra lama

Á fyrstu árum Nasistaflokksins voru sendir út leiðangar til Tíbet til þess að nema hin, leyndu fræði lamatrúarmanna. Slíkar ferðir voru farnar með jöfnu millibili allt fram til ársins 1943. Heimsóknirnar voru gagnkvæmar því brátt hófu hindúar og tíbetskir lamar að flytja til München og Berlínar. Meðal þeirra var lami, sem nefndur var "maðurinn með grænu glófana". Hann var forspár og sagan segir að hann hafi skyggnst inn í framtíðina fyrir háttsetta leiðtoga nasistaflokksins. Hitler átti einnig að hafa leitað til hans með góðum árangri. Þegar sovéskir hermenn réðust inn í Berlín í lok seinni heimsstyrjaldar fundu þeir í valnum um þúsund lík Asíumanna í þýskum hermannabúningum. Engin opinber skýring hefur fengist á þessu kostulega fyrirbrigði.

"Sagnfræðingar hafa átt erfitt með að kyngja þeirri staðreynd að sá maður sem hefur haft hve mest áhrif á gang mannkynssögurnar á síðustu öld skuli hafi duflað í göldrum og öðrum hjáfræðum liðinna alda."

Það sem bjó að baki hinnar sérstæðu samvinnu nasista og tíbetskra munka var sú trú að í Tíbet hefði aðsetur ,,Konungur óttans". Þar áttu jafnframt að vera andlegar aflstöðvar sem gera átti Þjóðverjum fært að ná heimsyfirráðum og verða uppeldisstöð komandi kynflokks ofurmenna. Tíbetmunkarnir voru sannfærðir um að þeim væri ætlað í samvinnu við nasista að ryðja ofurmönnunum braut og koma á fót andlegu ríki, er vara skyldi í þúsund ár. Þessar kynlegu hugmyndir voru hluti af launhelgum Thulefélagsins, en meðlimir þess voru meðal fyrstu og áköfustu stuðningsmanna Hitlers.

Lærifaðir Adolfs Hitler

Dietrich Eckart var með atkvæðamestu leiðtogum Thulefélagsins. Hann hefur af mörgum verið nefndur andlegur lærifaðir Hitlers. Hitler mat Eckart mikils og sem dæmi um það má nefna að hann tileinkaði honum lokakaflann í Mein Kampf. En þar segir Hitler: ,,Meðal þessarar hetja vil ég einnig telja einn þann besta, sem helgaði líf sitt vakningu þjóðarinnar í ljóðum, hugsunum og loks í verki: DIETRICH ECKART." Þegar Hitler var kominn til valda sagði hann einnig um Eckart: ,,Hann lýsti okkur eins og pólstjarnan. Mér finnst það sárara en tárum taki að Dietrich Eckhart skyldi ekki upplifa sigurstundir flokksins."

Eckart var þó á margan hátt algjör andstaða Hitlers. Hann var rúmlega tuttugu árum eldri og gefinn fyrir bílífi og ólifnað af verstu gerð. Hann var mjög drykkfelldur og þurfti um tíma að dvelja á geðveikrahæli sökum morfínneyslu. Eckhan naut þó virðingar vegna ritstarfa sinna og þýðingar á Pétri Gaut eftir Ibsen. Sagt er að sumarkvöld eitt árið 1919 hafi hann setið á knæpu með vinum sínum úr Thulefélaginu og rætt um hvaða eiginleika leiðtogi nýs og voldugs stjórnmálaflokks þyrfti að hafa:

Adolf Hitler og 107 þingmenn Nasistaflokksins árið 1930

Þessi ljósmynd, sem tekin er þann 12. október 1930 í Hótel Kaiserhof, sýnir hluta af þeim 107 þingmönnum sem Nasistaflokkurinn hafði á að skipa á þeim tíma. Þessi luralegi fremst á myndinni er Gregor Strasser en við hlið Hitlers situr Wilhelm Frick. Myndin sýnir vel hve framarlega nasistar voru í allri áróðurstækni, því ekki er allt sem sýnist. Á borðinu gegnt Hitler er rauðvínsflaska, þó vitað væri að Adolf snerti aldrei áfenga drykki. Rauðvínið gæti verið dulbúinn tilvísun til rauðvínsdrykkju Jesú Krists. Í hægri hendi Hitlers sést síðan glitta í egg. Myndin sýnir því endurlausnarann með fjöregg þýsku þjóðarinnar í hendi sér.

,,Það þarf að vera maður, sem ekki er hræddur við skrölt í vélbyssum, því þær þurfum við að nota til að skjóta skrílnum skelk í bringu. Og þó þýðir ekki að hann sé liðsforingi, því að fólkið er hætt að bera virðingu fyrir þeim. Best væri að fá kjaftforan verkamann. Hann þarf ekki að vera greindur, pólitík er hvort sem er það heimskulegasta sem til er. Hver þvottakerling í München veit eins mikið í pólitík og allir stjórnmálamennirnir í Weimar. Ég legg meira upp úr hégómlegum apaketti, sem getur sagt rauðliðunum til syndanna. Maður sem leggur ekki á flótta, þó stólfótum sé veifað, er meira virði en tólf sprenglærðir prófessorar, sem skjálfa og míga í sig af hræðslu."

Og að lokum klykkti hann út með þessum orðum:

,,En piparsveinn verður hann að vera, þá fáum við atkvæði kvenfólksins."

Galdrakerfi Thulefélagsins

Ljóst er að Eckhart fann í Adolfi Hitler þann foringja sem hann var að leita að. Frá fyrstu kynnum fór ákaflega vel á með þeim og Eckhart tók að kynna fyrir honum galdrakerfi Thulefélagsins. Samkvæmt heimildum var þetta æfingakerfi óvenjuleg samsuða af rúnaspeki, frímúrarafræðum, aðferðum rósarkrossmanna og hagnýtum leiðbeiningum úr Layajóga. Markmiðið var að styrkja viljann, efla einbeitingu hugans og vekja með sér dulrænt skyn. Mikilvægasti þátturinn var þó að koma iðkandanum í samband við hina ,,huldu meistara", eins og þeir voru nefndir. Ef marka má orð Eckharts tókst honum það ætlunarverk sitt því árið 1923, eða skömmu áður en lést, skrifar hann vini sínum:

,,Fylgið Hitler! Hann mun dansa, en það verð ég sem leik lagið. Vér höfum gert honum fært að hafa samband við Þá. Syrgið mig ekki. Ég mun hafa haft meiri áhrif á gang sögunnar en nokkur annar Þjóðverji."

Sólarkrossinn

Ýmsir siðir og flokkstákn þýskra nasista voru fengin að láni frá þjóðernissinnuðum galdrareglum, sem starfað höfðu í Þýskalandi frá því um aldamótin. Hakakrossinn var t.d. merki Nýtemplarareglu Lans von Libenfels, Ármannareglu Guido von Lists og Thulefélagsins. Hér að ofan má sjá merki Thulefélagsins árið 1919.

Hræðsluköst Hitlers

Hermann Rauschning og ýmsir aðrir Þjóðverjar, sem þekktu Adolf persónulega, voru sannfærðir um að Hitler hefði verið haldinn illum öndum í bókstaflegum skilningi þess orðs. Rauchning fullyrti að maður sem hafði náin kynni af Hitler hafi sagt sér:

,,Hitler vaknar stundum á nóttunni með ópum og andfælum. Hann kallar á hjálp. Hann sest fram á rúmstokkinn og situr þar, eins og hann geti hvorki hreyft legg né lið. Hann titrar af ótta, svo að rúmið leikur á reiðiskjálfi. Hann hrópar upp yfir sig algerlega óskiljanleg orð. Hann stendur á öndinni, eins og honum finnist hann vera að kafna. Eitt sinn stóð Hitler á gólfinu í herbergi sínu, riðandi á beinunum, og skimaði tryllingslega í kringum sig. ,,Það var hann! Hann var hérna!" sagði hann með öndina í hálsinum. Varirnar á honum voru helbláar. Svitinn bogaði niður andlitið á honum. Hann romsaði upp úr sér tölum, einkennilegum orðum og slitróttum setningum, sem engin brú var í. Það var hræðilegt á að heyra. Hann notaði kynlega samsettar og algerlega óþýskar orðmyndir. Síðan stóð hann grafkyrr og bærði aðeins varirnar. Hann var nuddaður og honum gefið að drekka. Allt í einu æpti hann upp yfir sig: ,,Þarna, þarna! Í horninu! Hver er þetta?" Hann stappaði í gólfið og hljóðaði, eins og honum var títt."

"Aleister Crowley sagði að það væri engum vafa undirorpið að Hitler og nánustu samstarfsmenn hans hafi meðvitað og markvisst fært sér í nyt ýmis lögmál galdraiðkunar. "

Hinar kynlegu óþýsku orðmyndir, sem Hitler hreytti út úr sér, minna á verndarmöntrur þær sem galdramenn nota til þess að verjast aðsóknum. Ef marka má þá einstaklinga sem telja sig hafa orðið fyrir slíkum aðsóknum fylgir þeim einatt köfnunartilfinning, en Hitler átti einmitt erfitt með andardrátt þegar hann fékk þessi köst. Hér að framan hefur verið greint frá hugmyndum Dietrichs Eckhart og meðlima Thulefélagsins varðandi hina ,,huldu meistara" eða ,,Konung óttans". Þessar hugmyndir hljóma eins og óðsmannshjal, en Hitler virðist hafa trúað þeim engu að síður. Í samræðum við Rauschning um þetta efni segir Hitler:

,,Hinn nýi maður er á meðal vor! Hann er hérna! Ég skal segja yður leyndarmál. Hinn nýi maður hefur vitrast mér - óttalaus og ógurlegur. Ég varð hræddur við hann!"

Djöflamessur og meskalín

Aleister Crowley hefur verið talinn með fróðustu mönnum á þessari öld um dulfræði og galdra. Hann dvaldi um tíma í Þýsklandi og fylgdist náið með því hvernig nasistaflokkurinn mótaði þýsku þjóðina. Crowley sagði að það væri engum vafa undirorpið að Hitler og nánustu samstarfsmenn hans hafi meðvitað og markvisst fært sér í nyt ýmis lögmál galdraiðkunar. Múgfundir nasista, með fánaborgum hakakrossanna, flöktandi blysum SS-sveitanna og hrífandi ræðum Foringjans, hafi verið djöflamessur heillar þjóðar. Crowley upplýsti einnig að tveir af helstu forvígismönnum Ordo Templi Orientis í Þýskalandi hafi fágað mælskulist Hitlers og kynnt fyrir honum notkun meskalíns. Undir áhrifum þess hafi Hitler síðan orðið sér út um ára eða demón, en tengsl við vætt af því tagi eru talin ómissandi í fjölkynngi, einkum svartagaldri.



Hæstiréttur
Fyrri líf?
Don Juan
Velheppnaður
Upptökubeiðnin
Nornareglan
Erla Stefánsdóttir
Gildismatið
Adolf Hitler
Seiður
Rúnagaldur
 | Forsíða  | Álit annarra  | Um höfundinn  | Tölvupóstur  | Tenglasafnið | Gestabókin | Spjall |
© Guðmundur Sigurfreyr Jónason