Fljótlega eftir að hermdarverkin urðu í Bandaríkjunum fór að berast til mín fjöldi tölvupósta þar sem ég var inntur álits á því hvort að Nostradamus hefði spáð fyrir um þessa óvæntu atburði. Sumir spurðu jafnvel hvort þeir mörkuðu upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. Margir voru reyndar þeirrar skoðunar og vitnuðu því til staðfestingar í spádóma er eignaðir voru spámanninum og gengu ljósu logum um netið. Ef marka má þau tölvuskeyti sem mér hafa borist eru það einkum þrjár hendingar sem fólk hefur verið að senda sín á milli. Eftir að hafa kynnt mér málið varð mér ljóst að aðeins einn af þessum þremur ,,spádómum" er að finna í riti Nostradamusar. Hinir eru uppspuni - falsanir sem ætlaðar eru til að blekkja fólk.
Hendingin sem eignuð er Nostradamusi og flestir vitna til hljóðar svona í íslenskri þýðingu:
|
,,Í borg Guðs verður mikil þruma.
Tveir bræður verða slitnir í sundur af ringulreið,
á meðan virkið stendur
mun leiðtoginn mikli lúta í lægra haldi.
Þriðja stóra stríðið mun hefjast þegar stóra borgin brennur."
- Nostradamus 1654
|
 |
Er Osama bin Laden ,,maðurinn með hvíta túrbaninn" og hinn ,,merki leiðtogi múhameðskra laga" sem mun, ásamt ,,nýja landinu" (heiti sem haft var yfir Bandaríkin á tímum Nostradamusar), hrekja heiminn út í ,,þriðja heimsstríðið", eða aðeins skugginn af þeim sem koma skal? |
"Einhverjum hefur þótt versið ekki nógu afgerandi og bætir við það síðustu setningunni."
Nostradamus lést árið 1566 þannig að það er fremur ólíklegt að hann hafi ritað þetta nálega hundrað árum síðar! Þegar betur er að gáð kemur líka í ljós að vísuna er hvergi að finna í spádómsritum Nostradamusar. Hún á sér þó nokkuð athyglisverða sögu. Höfundur hennar er kanadískur háskólanemi, Neil Marshall að nafni, sem birti ritgerð
á vefnum þar sem hann gagnrýnir spádóma Nostradamusar fyrir að vera afar óræða og opna fyrir hvaða túlkunum sem er. Máli sínu til stuðnings bjó hann til fyrrnefnda vísu og fullyrðir að hún sé nógu óljós til að unnt sé að heimfæra hana upp einhverja og jafnvel ólíka stóratburði í framtíðinni. Í ljósi þess sem síðar varð verður ekki annað sagt en að hann hafi reynst sannspár, að minnsta kosti hvað þetta varðar. Einhverjum hefur samt þótt vísan ekki nógu afgerandi og bætir við hana síðustu setningunni: ,,Þriðja stóra stríðið mun hefjast þegar stóra borgin brennur". Fölsunin var því fölsuð enn frekar.
Aukinn áhugi á verkum Nostradamusar
Annað vers, sem jafnframt hefur farið víða, er svona að inntaki:
|
,,Á ári hinnar nýju aldar,
og í níunda mánuðinum,
mun mikill ógnarkonungur koma frá himni.
Himinninn mun loga við fertugustu og fimmtu gráðu.
Eldur nálgast hina merku nýju borg."
|
Fyrstu tvær setningarnar í þessum texta eiga sér enga stoð í verkum Nostradamusar. Hinar þrjár má hins vegar finna í tveimur aðskildum spádómum. Hér er þeim raðað saman augljóslega til að hægt sé að staðfæra þær upp á sjálfsmorðsárásinar í New York.
 |
Í tíunda versi, annarri öld segir Nostradamus:
,,Bráðlega mun allt verða reiðubúið.
Við horfum fram á ískyggilegt tímabil.
Ríki hinna grímuklæddu og einangruðu
breytist mikið. Fáir vilja fylgja þeim."
|
Umræddar falsanir hafa ekki aðeins skotið fólki víða um heim skelk í bringu heldur vakið endurnýjaðan áhuga á spádómum Nostradamusar. Tæplega viku eftir að meintir flugumenn Osama bin Laden létu til skara skríða trónuðu ýmsar útgáfur af verkum hans í efstu sætum metsölulistanna. Sem dæmi má nefna að hjá helstu bókabúð netverja, amazon.com, voru bækur um framtíðasýnir Nostradamusar í 1., 4., 5., 11.,12. og 25. sæti metsölulistans! Heimasíður sem tileinkaðar eru spádómum Nostradamusar hafa ennfremur fengið ótrúlegan fjölda heimsókna. Á stundum var álagið svo mikið að netþjónar sem vistuðu síðurnar létu undan. Þennan áhuga má ekki aðeins rekja til rangfærðra spásagna heldur einnig til fyrirboða sem Nostradamus er í raun réttri höfundur að.
Þeir sem hafa kynnt sér spádómsrit Nostradamusar vita að hann spáði að kveikjan að ,,þriðja heimsstríðinu" yrðu átök milli múslíma og vestrænna ríkja. Hvort sem að Nostradamus reynist vera sannur sjáandi eða einn af mörgum falsspámönnum Gyðinga er engu líkara en að þjóðarleiðtogar samtímans séu staðráðnir í því að fara að forskrift hans í einu og öllu.
|