Ofurnám er ný námsaðferð sem vísindamaðurinn dr. Georgi
Lozanov hannaði eftir tuttugu ára rannsóknir á lífeðlisfræðilegum áhrifum jóga, vestrænni sjálfsefjun, slökunartækni og tónlistarlækningum. Dr. Lozanov fann út að mögulegt er að kenna nemendum meira en talið hefur verið eðlilegt með því að fara handan við þann múr sem veldur því að 96% heilans er lítt notaður. Hann uppgötvaði námsaðferð sem eykur lærdómshraða 300% og eykur varanleika þess sem lært er. Þessi einstaka námstækni nær til greindra sem tornæmra, ungra sem aldraða og krefst að auki ekki sérstaks tæknibúnaðar. Dæmi eru um að fólk hafi lært þriggja ára námsefni í tungumálum á aðeins tuttugu og þremur dögum. Nýlegar rannsóknir í Kanada og Bandaríkjunum hafa staðfest árangur þessa kerfis og vísindamenn telja það boða byltingu í menntamálum.
Ofurnám byggist á því að koma nemandanum í móttækilegt hugarástand með valinni bakgrunnstónlist, sjálfsefjun, líkamsslökun, öndunaræfingum og notkun ímyndunaraflsins. Í þessu móttækilega hugarástandi eru þekkingaratriðin kynnt fyrir nemandanum og þó að hann einbeiti sér ekki meðvitað að þeim getur hann munað þau þegar kennslustund lýkur. Kennslufræðingar fullyrða að með því að tengja saman mismunandi þætti mannsins (huga/líkama, meðvitund/dulvitund, hægra heilahvel/vinstra heilahvel) í vel starfandi heild opnist óþrjótandi möguleikar til náms.
 |
Rótaranga ofurnáms er að finna í Rajajóga eða hinu konunglega jóga hugans. Þessi gerð jóga leggur sérstaka áherslu á einbeitingu og þjálfun ímyndunaraflsins. Með því að fella Rajajóga saman við vestræna slökunartækni, öndunaræfingar og sjálfsefjun tókst dr. Lozanov að hanna námstækni sem hefur valdið byltingu í kennslufræði. |
Lært með lokuð augu
Kennslustund með þessari námsaðferð minnir helst á tónleika. Nemendur sitja þægilega í mjúkum hægindastólum, hlusta á rólega sígilda tónlist í herbergi sem líkist lítt venjulegri kennslustofu. Ljósin eru deyfð til að auka róandi áhrif umhverfisins. Í bakgrunni Brahms eða Vivaldi heyrist rödd kennarans sem hljómar í sérstökum takti og er ýmist eðlileg, blíðleg eða skipandi. Ólíkt því sem tíðkast í öðrum kennslustundum er nemendum ráðlagt að hlusta ekki á lestur kennarans heldur beina allri athygli sinni að tónlistinni og þeirri vellíðan sem líkamsslökuninni fylgir.
Árangur ofurnáms
Fjölmargar vísindarannsóknir hafa sýnt fram á notagildi þessarar námsaðferðar. Árið 1973 staðfesti N.L. Smirnova að hópur nemenda við V.I. Lenín stofnunina í Moskvu hefði lært nýtt tungumál á aðeins einum mánuði! Þrátt fyrir mikið námsefni fundu nemendur ekki fyrir þreytu. Þeir sögðust ,,skynja ákveðna svölun" og flestum fannst eins og ,,fyrirstaða feimni hefði verið fjarlægð". Mörg þeirra tilkynntu einnig að þau svæfu betur og að höfuðverkur og þunglyndi hefðu horfið.
Vísindaleg athugun, sem M. Rabcsak gerði í Búdapest átið 1979, leiddi í ljós að tuttugu manna bekkur lærði næstum 2.000 orð á 23 dögum (45 mínútur á dag). Af þessum orðaforða notuðu þau um 1.200-1.500 orð í samræðum á hinu nýja tungumáli. Tólf nemendur höfðu lært ensku og átta þýsku.
"Kennslustundin minnir helst á tónleika. Nemendur sitja í mjúkum hægindastólum og hlusta á rólega sígilda tónlist í herbergi sem líkist ekkert kennslustofu."
Þetta er mjög góður árangur þegar haft er í huga að hefðbundið tungumálanám kennir nemendum, þegar best lætur um 2000 til 3000 orð á fjórum árum. Af þeim fjölda geta nemendur notað að meðaltali um 1000 orð í samræðum. Árið 1982 leiddi bandarísk rannsókn í ljós að grunnskólanemendur, sem kennd var franska með þessari nýju námstækni, lærðu um 970 orð á átta klukkustundum! Prófanir sem þeir gengust undir í lok dagsins, sýndu að þeir gátu munað að meðaltali 97% námsefnisins. Hægt er að vísa til fleiri vísindaathugana sem staðfesta ótrúlegan árangur þessa sérstæða námskerfis.
Peter O'Connell, forstöðumaður School of English Studies í Kent á Englandi, segir um þessa skilvirku námsaðferð: ,,Hún gerir venjulegu námsfólki mögulegt að ná námsárangri sem í samfélagi nútímans er eingöngu á færi þess fámenna hóps sem við köllum snillinga."
Leyndardómar barokktónlistar
 |
Sjálfsefjun er mikilvægur þáttur í ofurnámi. Upphafsmaður þeirrar tækni á Vesturlöndum var Émile Coué. Rannsóknir vísindamanna á ofurnámstækninni gefa til kynna að uppástungur, sefjun og væntingar hafi mikinn áhrifamátt í sér fólginn.
|
Vísindamenn hafa lengi vitað að hugurinn starfar betur og minnisgetan eykst þegar líkaminn er í almennu slökunarástandi. Venjulegur hjartsláttur er um það bil 70-80 slög á mínútu. Með því að hægja á hjartslættinum niður í 60 slög á mínútu er hægt að auka andlega starfsgetu einstaklingsins. Dr. Lozanov vildi finna einfalda og hentuga aðferð til að hægja á líkamsstarfsemi nemandans en tryggja um leið að hann héldi fullri meðvitund og árvekni. Í þá veru studdist hann við aðferð sem þekkt er úr tónlistarlækningum. Hann uppgötvaði að sígild barokktónlist, sem hefur um það bil 60 slög á mínútu (largo), er tilvalin til þess að hægja á hjartslættinum sem því nemur. Einnig kom í ljós að largo-tónlistin samhæfir starfsemi beggja heilahvela og eykur framleiðslu heilans á svonefndum alfabylgjum. Alfabylgjur eru rafbylgjur heilans sem koma fram samfara slökun og hugleiðslu. Nemendur segja frá því að þegar kennslustund lýkur finni þeir til meiri frískleika og jafnvægis en áður. Tónlistin eflir þess vegna ekki aðeins hæfni nemenda til náms heldur eflir jafnframt andlega og líkamlega heilsu.
Hagnýtar leiðbeiningar
"Árið 1982 sýndi bandarísk könnun að nemendur, sem kennd var franska með tækninni, lærðu um 970 orð á átta klukkustundum!"
Hér verður gerð grein fyrir meginþáttum ofurnámstækninnar í því augnamiði að þeir sem áhuga hafa geti notað hana í eigin námi. Þessi námsaðferð kemur einkum að notum í öllu tungumálanámi og öllu námi sem byggir á utanbókarlærdómi. Aðferðin hefur verið notuð með góðum árangri við nám í efnafræði, lyfjafræði, lögfræði og læknisfræði svo einhver dæmi séu nefnd.
Möguleikar mannsins
Á síðustu árum hafa æ fleiri sálfræðingar haldið því fram að maðurinn noti ekki nema um 2-4% af raunverulegum möguleikum sínum. Möguleikar mannsins - allra manna - eru margfalt meiri en okkur er almennt ljóst. Flestir ef ekki allir eru sér meðvitandi um að þeir nota ekki nema óverulegan hluta þeirra hæfileika sem þeir búa yfir. Dr. Lozanov telur að mikilvægasta skrefið til að auka færni nemenda felist í því að uppræta neikvæðar hugmyndir sem þeir hafa um eigin getu. Rannsóknir og vísindalegar athuganir af ýmsu tagi hafa leitt í ljós að væntingar fólks (við hverju það býst eða ætlast) hafa afgerandi áhrif á framvindu mála. Þannig geta fyrirframskoðanir nemenda haft veruleg áhrif á námsgetu og árangur á prófum.
 |
Hugmyndin að tónlist hafi bætandi áhrif á heilsu manna er ekki ný. Um aldir hefur fólk notað tónlist til að breyta vitundarástandi sínu. Sú tónlist sem vísindamenn mæla með við notkun ofurnáms eru verk eftir 16. og 18. aldar barrokktónskáld eins og Bach, Vivaldi og Händel. Hún hefur nálægt 60 slög á mínútu og hægir á hjartslætti, minnkar blóðþrýsting og stuðlar að líkamlegri og andlegri slökun. |
Lozanov telur sjálfsefjun hentuga leið til að leysa í sundur sjálfvirka og um leið vélræna skynjun og skilningsmyndun. Frakkinn Émile Coué, frumkvöðull sjálfsefjunar á Vesturlöndum, lét einu sinni svo ummælt: ,,Þegar viljinn og ímyndunaraflið eiga í rimmu ber ímyndunaraflið ævinlega sigur úr býtum." Í starfi sínu sem læknir ráðlagði Coué sjúklingum sínum að endurtaka í nokkrar mínútur tvisvar á dag: ,,Sérhvern dag, á sérhvern hátt, líður mér betur og betur." Hann taldi að nota mætti þessa einföldu tækni til að planta inn í dulvitundina jákvæðum staðhæfingum sem skila sér síðan í betri heilsu. Rannsóknir hafa staðfest þessa skoðun. Á sama máta má framkalla jákvætt viðhorf til námsins og bæta námshæfni sína.
Líkamsslökun og jákvæðar staðhæfingar
Eitt hinna almennu skilyrða fyrir góðum árangri í notkun sjálfsefjunar er slökun líkamans. Þegar hvíldarástand líkamans hefur náðst fylgir hugræn kyrrð sjálfkrafa í kjölfarið. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að ná dýpra stigi slökunar áður en hin eiginlega sjálfsefjun hefst. Hér verður gerð grein fyrir slökunartækni sem gefið hefur góðan árangur:
A. Þú leggst á gólfið og lætur fara vel um líkamann. Síðan byrjar þú á því að athuga hvort nokkurs staðar sé óþarfa spenna eða vöðvaþreyta. Þú fylgist með spennublettum líkamans án þess að ,,reyna" eða ætla þér að gera líkamann slakan. Það er nóg að upplifa spennuna og þá hverfur hún í flestum tilvikum af sjálfu sér. Sigvaldi Hjálmarsson lýsir þessu þannig: ,,Hér gildir það sama og um vatnið í tjörninni; aðeins ef það er látið vera sáldrast gruggið niðrá botn og vatnið verður tært."
B. Áframhaldið felst í því að athuga sérstaklega níu staði líkamans sem mikilvægt er að séu slakir: l. fingur, 2. tær, 3. axlir, 4. háls, 5. kjálkar, 6. andlitsvöðvar kringum munn og augu, 7. hársvörður, 8. tungurætur, 9. kviður. Jógavísindin kerzna að séu þessir staðir slakir slakni hitt svo að segja af sjálfu sér.
C. Þegar þú hefur öðlast alhliða líkamsslökun endurtekur þú nokkrum sinnum eftirfarandi staðhæfingar eða aðrar af svipuðum toga sem þú hefur sjálfur búið til: ,,Ég læri vel og auðveldlega." ,,Ég man allt sem ég þarf að muna." ,,Hæfni mín til náms eykst með degi hverjum."
Þegar þú hefur þessar setningar yfir er gagnlegt að þú upplifir inntak þeirra tilfinningalega. Jafnframt eykur það áhrifamátt æfingarinnar ef þú sérð fyrir þér hverju þú vilt ná fram með staðhæfingunum. Þú getur t.d. séð sjálfan þig leysa erfið úrlausnardæmi fljótt og auðveldlega. Skapandi hugsýnir hafa áhrif vegna þess að taugakerfið gerir engan greinarmun á raunverulegum atburði og atburði sem gerist eingöngu í ímyndunaraflinu.
Önnur einföld aðferð, sem Georgi Lozanov mælir með, er að rifja upp aðstæður þar sem þér gekk vel að læra eða náðir góðum árangri og finna hvernig þér leið á þeirri stundu.
Taktöndun
"Ofurnám var meðhöndlað sem ríkisleyndarmál í Búlgaríu. Sovésk yfirvöld gáfu fyrirmæli um að Vesturlandabúar fengu engar upplýsingar um þessa námstækni"
Næst á eftir æfingunni hér á undan, notar þú síðan öndunartækni sem jógar segja að stilli saman hrynjandi vitundar og líkama. Dr. Lozanov staðhæfir að stjórnun öndunarinnar (pranayama) sé lykilatriði í ofurminni indverskra bhramína, er nota ævaforna jógatækni til að læra helgirit sín utanbókar. ,,Maórítar Nýja-Sjálands," segir hann, "þjálfuðu með sér sams konar ofurminni og jógar Indlands. Á okkar dögum getur Kaumatana, höfðingi maóríta, haft yfir gjörvalla sögu þjóðflokks síns, sem spannar fjörutíu og fimm kynslóðir og yfir eitt þúsund ár. Það tók höfðingjann þrjá daga að endursegja söguna og þegar á flutningnum stóð notaði hann ekki nein minnisblöð." Lozanov kynnti sér minnistæknina sem maóríski seiðgoðinn brúkaði og sambærilegar aðferðir úr jóga. Hann ráðleggur nemendum sínum að nota eftirfarandi taktöndun:
Þú andar að þér á meðan þú telur upp að fjórum, heldur niðri í þér andanum á meðan þú telur upp að fjórum, andar frá þér á meðan talið er að upp að fjórum og staldrar loks við á meðan þú telur upp að fjórum.
Innöndun - 2,3,4; Halda - 2,3,4; Fráöndun - 2,3,4; Hlé - 2,3,4.
Þessi hrynja er endurtekin fjórum sinnum. Síðan lengir þú hvert tímabil með því að telja upp að sex, og andar þannig alls fjórum sinnum. Að lokum telur þú upp að átta og gerir fjórar umferðir líkt og áður.
Ofurnámstæknin
 |
Ofurnám var í fyrstu meðhöndlað sem ríkisleyndarmál í Búlgaríu. Sovéska ríkisstjórnin gaf sérstök tilmæli þess efnis að dr. Georgi Lozanov og nánustu samstarfsmenn hans upplýstu ekki vestræna starfsfélaga sína um árangur þessa sérstæða námskerfis. Ofurnám var fyrstu árin einkum notað af hernaðaryfirvöldum og til að þjálfa geimfara. Á alþjóðlegri ráðstefnu um dulsálfræði í New York árið 1981 svipti dr. Lozanov loks hulunni af uppgötvun sinni.
|
Þegar þú hefur gert þessar öndunaræfingar ertu í stakk búinn til að beita hinni eiginlegu ofurnámstækni. Aðferðin felst í því að lesa námsefnið inn á segulband með viðeigandi takti. Þú skiptir átta sekúndna tímabili í tvo hluta. Fyrstu fjórar sekúndurnar ríkir þögn, síðan er námsefnið borið fram á næstu fjórum sekúndum og þannig koll af kolli.
1-2-3-4 |
1-2-3-4 |
Raddbeiting |
þögn |
kanína, le lapin |
eðlileg |
þögn |
rúm, le lit |
hvíslandi |
þögn |
bók, le livre |
hávær |
Á þeim fjórum sekúndum sem námsefnið er lesið upp heldur þú niðri í þér andanum. Þegar fjögurra sekúndna þögnin stendur yfir andar þú frá þér og að þér og ert tilbúinn að halda niðri í þér andanum þegar næsta setning er borin fram. Þú þarft sem sagt að búa til þína eigin námsskrá. Þú tekur upp á snældu upplestur á námsefninu ofan í rétta bakgrunnstónlist sem hefur viðeigandi hljómfall (largo). Til þess verður þú að hafa tvö hljómtæki - annað til að leika tónlistina og hitt til að taka upp upplesturinn sem fluttur er með áðurnefndri raddbeitingu, með tónlistina í bakgrunni.
Kennslustund með ofurnámstækninni
Áður en þú byrjar á kennslustund í ofurminni lest þú yfir textann sem þú ætlar að leggja á minnið. Kennslustundin fer fram í tveimur hlutum. Fyrst lestu textann yfir í hljóði og hlustar um leið á hljóðsnælduna sem flytur námsefnið upphátt. Síðan lokar þú augunum í hvíldarstellingu og hlustar á sama texta lesinn upphátt og í þetta sinn með tónlistina í bakgrunni
"Dr. Lozanov staðhæfir að stjórnun öndunarinnar sé lykilatriði í ofurminni indverskra bhramína, er nota ævaforna jógatækni til að læra helgirit sín utanbókar."
Fyrri hluti - án tónlistar
Það er tvennt sem nauðsynlegt er að hafa í huga. Í fyrsta lagi að lesa textann í hljóði samtaka röddinni sem les námsefnið í fyrrnefndum takti. Í öðru lagi að anda í takt við upplesturinn. Eins og áður hefur verið greint frá nemur rödd ,,kennarans" staðar í fjórar sekúndur og les síðan texta næstu fjórar sekúndur, staldrar síðan við í fjórar sekúndur og svo framvegis. Þú andar út og inn á meðan þögnin varir. Haltu síðan andanum í fjórar sekúndur þegar námsefnið er borið fram!
Seinni hluti - með tónlist
Þegar þú hefur lesið efnið einu sinni yfir samhliða upplestrinum setur þú textann til hliðar, slekkur ljósin, hallar þér aftur og lokar augunum. Þú hlustar nú á sama námsefnið lesið aftur yfir, en í þetta skipti með tónlist í bakgrunni! Andaðu eins og áður í takt við upplesturinn - andaðu út og inn í þagnarhléinu og haltu niðri í þér andanum þegar námsefnið er flutt. Þetta er allt og sumt sem þú þarft að gera.
Þú getur tekið upp þína eigin tónlist eða pantað viðeigandi barokk-tónlist frá t.d. Superlearning. Þeir sem vilja taka upp tónlistina sjálfir ættu að viða að sér hljómplötum með verkum eftir J.S. Bach, Corelli, Händel, Telemann eða Vivaldi. Tónlistin þarf að hafa um 60 slög á mínútu. Þess vegna er nauðsynlegt að velja eingöngu þau tónverk eða búta úr tónverkum sem eru flutt á hæfilegum hraða. Sem dæmi þá þýðir allegro um 120-168 slög á mínútu, andante um 76-108, adagio um 66-76, larghetto 60-66 og largo 40-60 slög á mínútu. Adagio, larghetto og einkum largo henta því best við ofurnám.
Ítarefni:
Superlearning eftir Sheila Ostrander og Lynn Schroeder, Sphere Books, U.S.A.
Accelerated Learning eftir Colin Rose, Topaz Publishing, England.
|